Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Side 33

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Side 33
33 var hreppstjóranum, Þorleifi Jónssyni í Hólum, skýrt frá fundinum, og símaði hann mér skýrslu um hann 16. s. m. — Ey þessi hefir ekki verið byggð, svo menn viti, enda er hún lítil, og engin munnmæli voru um neina dys þarna. Eyin er nú ætið nefnd Álögarey, og svo er nafn hennar stafað á uppdrætti herforingjaráðsins frá 1905, en vitanlega er hið upphaflega nafn Álöfarey; hefir eyin verið kennd við konu með því nafni, sennilega einmitt þá hina sömu, er nú sást, að hér hafði verið grafin. — Álöf er sama og Ólöf. í ferð til Hamarsfjarðar næsta sumar kom ég við í Höfn um óttuleyt- ið 1. dag Ágústmánaðar, fór út í Álöfarey og rannsakaði fundarstaðinn. Hann var nyrzt á eynni, austarlega, mjög skammt frá sjó. Hafði þarna verið reist nýlega allmikið hús, og var dysin skammt fyrir norðvestan það. Eptir tilmælum mínum hafði dysin verið hulin aptur, og hlutir og bein, sem höfðu fundizt, höfðu verið sett í kassa, og hann hulinn einnig. Var iiú ekki unnt að sjá, hversu beinin hefðu legið í jörðunni, þegar þau komu fyrst í ljós, en eptir skýrslu hrepp- stjóra hafði höfuðið snúið í austur og fætur í vestur. Kassinn var nú tekinn upp og dysin rannsökuð. Þúfa, lág og allbreið, hafði varið yfir henni, en ekki áberandi, því að jarðvegurinn umhverfis var dálítið ójafn. Hann er mold ein og sást nú ekki, hverzu víð gröfin hafði verið í fyrstu, en grunnt hafði hún verið grafin, og var nú vart meira en l/3 m. frá yfirborði að grafarbotni. Beinin voru fá og mjög eydd af fúa. Annar lærleggurinn fannst þó nokkurn vegin heill; hann er 39,3 cm. að I., en hefur verið 39,5 að minnsta kosti og bendir til, að konan hafi verið um 150 cm. að hæð, þ. e. mjög lág vexti. Bein hennar önnur eru einnig smágerð, og höfuðkúpan sömuleiðis, 17,5X 12,5 cm., en einkar falleg að lögun. Tennur þær, sem fundust, sýna háan aldur; hefur konan sennilega komizt yfir áttrætt. Þegar beinin fundust, lá járnstöng yfir þeim, og greiða fannst hjá þeim; enn fremur höfðu fundizt, eða fundust við rannsóknina, fleiri hlutir: Tvær kúptar, tvöfaldar og sporöskjulagaðar bronzispenn- ur, armbaugur úr gagati eða líku efni, klippur, hnífsblað, tveir hringir úr járni og tvö járnbrot, sem óvíst er um, úr hverju sé. Skal nú gripum þessum lýst nokkuð. Járnstöngin er í 5 brotum, en sennilega vantar ekkert af henni, hún er 78 cm. að lengd, ferstrend og bein, niðurmjó neðst, um 0,8— 1,2 cm. að þverm. Efri endinn hefir verið gerður mjór og beygður í hring, svo að þar er nokkurs konar húnn með gati í gegn. Óvíst er, til hvers þessi stöng hafi verið smíðuð eða notuð, en geta má þess til, að hún hafi verið eldskörungur, og ekki er heldur allsendis ólíklegt, að gamla konan hafi notað hann til varnar sér eða stuðnings 3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.