Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 53

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 53
53 kenndur síðan. Þar eru sums staðar gjögur eða skútar inn í hamr- ana vestan-í höfðanum, og er þar gott vígi, en um verulegt skarð er hér ekki að ræða nú, og engin hætta er á því, að gengið yrði að baki manns, er verðist í einhverju viki í hömrunum. Sums staðar slúta hamrarnir einnig fram-yfir og verður þar ekki kastað grjóti né spjóti ofan-frá til manns, er stendur þar inni-undir. Má ætla, að Grettir hafi tekið tillit til þessa ágæta vígis, er hann valdi sér hér stað, en jafnframt hefir hann að sjálfsögðu tekið tillit til annara lands- hátta við vatnið, víkurinnar og nessins eða tangans sunnan-við hana, og ekki hvað sízt ágætrar vatnslindar, sem kemur upp úr jörðu rétt norð-austan-við kofatóttirnar og frýs sennilega aldrei; er hún hið ágætasta vatnsból. Sennilega hefir Grími Þórhallssyni verið kunnugt um hina tiltölu- lega góðu staðháttu til útilegu hér, er hann réði Gretti, vini sínum, að setjast hér að. Hér var hann jafnframt svo nærri byggð og búfjár- högum, að Grímur og aðrir vinir Grettis gátu veitt honum liðveizlu á ýmsan hátt, bæði með áhöld og matvæli, og njósnir, eins og sag- an segir; þegar Grímur varð þess var, að ráðin var aðför að Gretti, þá gerði hann Gretti orð »ok bað hann vera varan um sik«. En auk þess, að landshættir og fiskignægð Arnarvatns stóra benti Grími á þennan stað, hefir sennilega annað orðið til þess jafn- framt. Kristleifur bendir óbeinlínis á það í grein sinni, er hann segir um Arnarvatnsheiði: »Þar leituðu líka sekir menn bæði griðastaðar og matfanga. Má þar til nefna Grím, son Helgu á Kroppi, sem Lax- dæla segir frá, og Gretti Ásmundsson«. Kálund minntist einnig á Grim Helgason í sambandi við það, sem hann segir um Gretti og veru hans á Arnarvatnsheiði: »Efter at Grette var draget bort herfra, indtoges hans plads af en anden fredlös, Grím fra Kropp i Borge- fjord« o. s. frv. Fer Kálund hér beinlínis eptir Grettissögu, 62. kap.; þar segir svo að upphafi; »Litlu síðar en Grettir fór af Arnarvatns- heiði, kom sá maðr á heiðina, er Grímr hét. Hann var sonr ekkjunnar á Kroppi. Hann hafði drepit son Eiðs Skeggjasonar ór Ási, ok varð fyrir þat sekr gerr. Hann settiz nú þar, sem Grettir hafði áðr verit, ok veiddi vel ór vatninu«. í Laxdælasögu, 57. kap. (útg. Fornr.-fél. frá 1934), er sagt, að Eiður hafi kveðizt »helzt ætla, at Grímr ætti bæli norðr á Tvídægru, við Fiskivötn«, og að Þorkell Eyjólfsson, er ætiaði að fara að Grími og drepa hann, hafi fundið skála hans »hjá vatni einu miklu«, og siðan séð Grim, þar sem hann sat »við vatnit, við einn lækjarós, ok dró fiska«. — »ÞorkeIl stigr af baki ok bindr hestinn undir skálavegginn; síðan gengr hann fram at vatninu, þar sem maðrinn sat. Grimr sá skuggann mannsins, er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.