Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 78

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Page 78
78 fremur góð heyskaparlönd. Gras er í þeim flestum fremur mikið og gott, en æðarvarp hefir verið fremur lítið alla tíð í þessum eyjum. Aftur hefir þar verið talsverð kofnatekja, einkum í þeim eyjunum, sem tilheyrðu Stóru-Tungu, og var hún áður á tímum talin mikil hlunnindi, en nú er að mestu hætt að nytja hana í Breiðfjarðareyjum. Gömul venja var að selja 120 kofur (stórt hundrað) fyrir 1 vætt, væri kofan reitt, en 6 fjórðunga, væri hún óreitt. Kofnatekja var mjög mikil í flestum Breiðafjarðareyjum; t. d. var sr'gt, að fengjust í Akur- eyjum um 10000 kofur og í Bjarnarhöfn um 9000. Á því má sjá, hvort ekki hafi verið mikil hlunnindi að kofnatekjunni. Sannar sagnir eru um það, að á allri 19. öld hafi verið sá átrún- aður mjög ríkjandi, að frá Arnarbæli kæmist enginn bóndi lifandi, sem þar byggi í 10 ár eða lengur. Þeirri sögn fylgir, að kona, sem hafi átt Arnarbæli og búið þar eftir mann sinn látinn, hafi mælt eitt sinn fyrir, að svo skyldi verða. Enn fremur, að þar skyldi enginn sjálfseignarbóndi þrífast (komast af, vegna efnahags). Ástæða fyrir þessum ummælum konunnar átti að vera sú, að efnaður bóndi þar í sveitinni, sem búinn var að eignast flestar jarðir í grennd við sig, hafi lagt miklar fölur á að fá Arnarbæli keypt, en konan verið lengi vel ófáanleg til að selja þessa eign sína, og hefði það valdið bónd- anum mikillar áhyggju. Sagnir eru um, að bóndi hafi ekki ósjaldan heyrzt segja að nóttu til: »Oft vekur þú mig, Arnarbæli«. Eftir marg- ítrekaðar tilraunir lét ekkjan jörðina fala, með því að bóndi bauð henni margfalt hærra verð fyrir hana en nokkrum manni gæti komið til hugar að kaupa hana fyrir, og gat konan ekki staðið það af sér. Enda greiddi bóndi konunni allt kaupverð jarðarinnar með banka- seðlum um leið og samningurinn var gjörður um kaupin. Eftir nokk- urn tima vissi konan ekki fyrri til en að hún fékk fregnir um, að allir þessir bankaseðlar, sem hún fékk fyrir jörðina, væru verðlausir og einskis-nýtir. Banki sá, sem seðlana hefði gefið út, væri orðinn gjald- þrota. Þá er konan vissi, að öll þessi seðlahrúga, sem hún fékk fyrir eign sina, væri verðlaus, og að hún hefði látið eignina fyrir als ekkert, og kaupsamningurinn svo úr garði gjörður, að ekki væri hægt að rifta honum, hefði konan orðið mjög sár og sagt svo fyrir, að frá Arnarbæli skyldi enginn bóndi lifandi komast, sem þar byggi í 10 ár eða lengur, og enginn sjálfseignar-bóndi þrífast. Þessi átrúnaður var mjög ríkjandi á Fellsströnd og í nærliggjandi sveitum, svo að flestir þóttust fullvissir um, að ummæli konunnar kæmu fram á öllum bænd- um, sem að Arnarbæli flyttu, og röktu menn sannanir fyrir þeirri staðhæfingu. En hvernig, sem þetta hefir verið, og hvort sem nokk- uð er hæft í þessum ummælum konunnar og þessari sölu á Arnar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.