Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Blaðsíða 82
82
er ekki hægt að byggja fyrir ofan það né neðan. Ytri endi túnsins
liggur að vogsbotninum, og því er ekki hægt að byggja veg þeim
megin við það, en að ofan (norðanverðu) er Bæjarborgin, sem mjög
dýrt væri að leggja veg yfir.
Fyrir austan kálgarðinn er hóll, sem Lambhússhóll heitir (10);
liggur hann frá kálgarðinum inn undir Lambhúsin, sem eru innarlega á
túninu, rétt við Bæjarborgina. Sá hluti túnsins, sem er fyrir austan
bæinn, en fyrir ofan reiðgötuna, heitir Lambhússvellir (11) — fremri
og innri. — Vellir þessir eru báðir mjög grýttir og þýfðir. Þar er
ekkert greiðfært, nema ein flöt og Lambhússhóllinn. Er mjög erfitt
að slétta þessa velli, vegna störgrýtis, Fyrir neðan (sunnan) götuna er
Brunnhússvöllur (12). Nær hann frá brunnhúsinu, sem er neðst í tún-
jaðrinum, og yzt í vellinum, inn að túngarði. Völlur þessi er langur,
en mjór. Mestur hluti hans er þýfður og grýttur. Fyrir vestan Brunn-
hússvöllinn er Smiðjuhólsflötin (13), og Smiðjuhóllinn (14) þar fyrir
vestan; er hann allstór um sig og greiðfær. Fyr á tímum stóð smiðja
á þessum hól og sést enn fyrir tóft hennar. Hóllinn er berghóll, sem
um langan tíma hefir verið þakinn ösku og öðru úrgangsrusli; er þess
vegna orðið nú talsvert djúpt jarðlag á honum, ofan-á berginu. Fyrir
ofan Smiðjuhólinn er Bæjarhóllinn (15), sem er lágur og lítill um sig.
Á milli hans og Smiðjuhólsins er laut. Fyrir vestan þessa hóla tekur
við völlur, sem Þúfnaoddi heitir (16); nær hann alla leið út að tún-
garði. Þúfnaodda marka hólarnir að austan, reiðgatan að norðan,
túngarðurinn að vestan og Arnarbælisvogsbotninn að sunnan, og
myndast skarpur oddi úr honum fram í voginn. Af þessum Odda
og því, hve ill-þýfður þessi völlur var, mun hann hafa fengið þetta
nafn. Þúfnaoddi mun vera um 6—7 dagsláttur að stærð. Þennan völl
var erfitt að heyja, meðan hann var allur þýfður; nú er hann allur
sléttur. Elztu slétturnar eru um 40 ára og farnar að þýfast vegna
vatns.
Fyrir ofan (norðan) götuna með Bæjarborginni er völlur, sem
Lengja heitir (17). Nær þessi völlur frá vesturenda kálgarðsins og
út að túngarði. Lengja er öll þýfð og grýtt; aðeins ein flöt í henni
fyrir utan bæinn, og var erfitt að gera hana, vegna grjóts. í Lengju
er rúst, sem Bænhússtóft er kölluð; er talið víst, að þar hafi bæna-
hús það staðið (18), sem um Iangan tíma var í Arnarbæli. Bænahús-
inu fylgdi eitt ásauðarkúgildi; eftir það greiddi ábúandi jarðarinnar
sóknarprestinum 20 pd. af smjöri. Sagnir eru um það, að þetta kúgildi
hafi fallið, og að þá hafi staðið styr á milli jarðareiganda og sóknar-
prests um greiðslu á leigu eftir kúgildið. Eftir talsvert þjark hafi þó
samizt svo á milli þeirra, að presti skyldi greiða árlega eina spesíu;