Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1933, Síða 87
87
sást í bæjarsundinu. En talið var víst, að hún væri úr Ormsstaða-
vatni.
Landamerki á milli Arnarbælis og Ormsstaða eru: Úr suðurhorni
Ormsstaðavatns sjónhending í norðausturhorn Arnarbælisvatns, og
þaðan eftir svo-nefndum sýkjum suður í Marklæk, sem er merkilækur
á milli Víghólsstaða og Arnarbælis. Þessi lækur rennur í norðvestur-
horn Kjarlaksstaðavogs. Arnarbælisvatn (71) er ekki stórt vatn, og
talið miklu grynnra en Ormsstaðavatn. Ekki þekki ég heldur neinar
gamlar sagnir um það vatn. Nokkru fyrir neðan Arnarbælisvatn er
hátt holt, sem heitir Vatnsholt (72), og næsti ás þar fyrir sunnan
heitir Vatnsás (73); er hann hár og með klettum. Flóasundin á milli
ásanna bera nöfn af ásunum. Fyrir norðan Vatnsásinn er mýrarsund,
sem liggur vestur með Hraunfjallabekkjunum, sem einu nafni kall-
ast Hraunfjallakrókar (74). Fyrir austan Vatnsás er Vatnsássflói (75),
sem er á milli Vatnsássins og Byrgishólanna (76); er þessi flói áfram-
hald af Bæjarborgarflóanum, sem liggur til austurs. Mýrin, sem Iigg-
ur fyrir autan Vatnsholtið, heitir Grásteinsmýri (77); nær hún upp að
sýkjum og inn að Marklækjarholtinu, sem er sunnanvert við upptök
Marklækjar úr sýkjunum. Syðst á þessari mýri er stór steinn, sem
Grásteinn heitir (78) og mýrin dregur nafn sitt af. Suðvestur af
Grásteinsmýri eru Byrgishólarnir (76). Meiri hluti þeirra er vaxinn
lyngi, en lautirnar á milli þeirra fjalldrapa. Flóasundið, sem er á milli
Byrgishólanna og Bæjarborgarinnar, heitir Lindarsund (79). Sundið er
mjög blautt, sem fleiri flóar í Arnarbæli, en þar er fremur gott mó-
tak. Sundið nær vestur á móts við norðurhornið á Bæjarborginni, en
þá tekur við Bæjarborgarflóinn. Brekkan að norðanverðu við Lindar-
sundið heitir Móbrekka (80). í þeirri brekku er vanalega þurkaður
mórinn, sem tekinn er upp í Lindarsundinu; hún nær suður að brúnni,
sem er fyrir austan túnið í Arnarbæli. Fyrir austan brúna taka við
holt. Hið næsta heitir Byrgisholt (81). Sunnan undir því holti er
gömul rétt, sem Lambabyrgi heitir (82). Fyrir austan Byrgishoitið er
hátt holt, sem heitir Háa-brekka (83). Suðaustur af Byrgisholtinu og
Háu-brekku er stórt land, sem heitir Eyrarnes (84); liggur það aust-
ur með þessum holtum upp að Marklæk. Eyrarnesið myndar Kjar-
laksstaðavogur að austan, en Arnarbælisvogur að sunnan. Endar nes-
ið í mjóum odda, þar sem þessir vogar aðskiljast, og heitir hann
Eyrarnessoddi (85). Sunnarlega í nesinu, með Kjarlaksstaðavognum,
eru háir klettar, sem kallaðir eru Eyrarness-klettar (86). Fyr á árum
var Eyrarnesið aðal-slægjulandið í Arnarbæli, auk túnsins og eyjanna,
og var þar allgott slægjuland. í fulla 3 tugi ára hefir þar ekkert