Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1982, Blaðsíða 204
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1982
207
verið um tíma í Skaftafelli um vorið og unnið að frágangi, málun og hreinsun
Selsbæjarins. Þá voru smiðir einnig þar og gengu frá stofu og eldhúsi.
Á Burstarfelli var talsvert unnið að hleðslu veggja og annarri viðgerð gamla
bæjarins. Meginverkið þar var þó í því fólgið að leggja jarðvatnslögn ofan við
bæinn og niður með honum beggja vegna, en þarna er vatnsagi og mikill raki í
bænum sem gerir að verkum, að veggir og timburverk endist illa. Virtist þessi
aðgerð ætla að gefa góða raun.
Lokið var viðgerð á turni Grundarkirkju í Eyjafirði og var hann málaður og
vinnupallar teknir niður. Er þá klifinn erfiðasti hjallinn í viðgerð þessarar
merkilegu kirkju, en turninn var illa farinn af fúa. Var nú reynt að ganga svo
vel og vandlega frá öllu, sem unnt var, þannig að viðgerðin geti orðið til
langrar frambúðar.
Þá er eftir að yfirfara þak og veggi kirkjunnar, sennilegast þarf að skipta
um þakjárn, en veggklæðning virðist ekki illa farin. Austurstafn var endur-
nýjaður í byrjun viðgerðar. Loks er eftir að endursmíða grindverk umhverfis
kirkju, sem búið er þó að framan að hluta, en áformað er að færa það nokkuð
út frá kirkjunni og jafnframt að planta nýjum trjám utar. Hin gömlu eru
komin á fallanda fót og sum dauð nú. Þau eru orðin jafnhá kirkjunni, einhver
gróskulegustu tré þar í sveitum, en kirkjan líður óneitanlega fyrir trén, hverf-
ur í skugga þeirra og verður fyrir hnjaski af þeim í stormum.
Hafizt var handa um viðgerð málarastofu Arngríms Gíslasonar á Gull-
bringu í Svarfaðardal, sem lengi hefur verið á fornleifaskrá. Er hún í rauninni
ásamt öðrum bæjarhúsum í Gullbringu í eigu fjölskyldu Kristjáns heitins Eld-
járns, en í minningarskyni við hann bauðst Seðlabanki íslands til að kosta við-
gerð stofunnar. Var það góða boð þakksamlega þegið, en Hjörleifur Stefáns-
son arkitekt mun hafa umsjón með þeirri viðgerð.
Stærra verzlunarhúsið frá Vopnafirði komst nú undir þak á árinu, en nokk-
ur ár eru síðan grindin var reist. Hins vegar kom í ljós, að mjög mikið þurfti
að endurnýja af grindinni, þar sem hún hafði fúnað af því að standa svo lengi
óklædd. — Aðeins var hægt að klæða veggi og nærþak hússins, en bíða varð
með glugga og yfirþak.
Pétur G. Jónsson sá um verkið en með honum vann að því Jens Pétursson.
í Nesi var lokið að mestu við að múra upp vegg að nýju milli læknisstofu og
móttökuherbergis og einnig var múrað að gluggum og þakbrún. Gólfin voru
tekin upp og grafið niður úr eldhúsgólfi, þar sem áður var apótekið, til að
kanna, hvort þar leyndist eitthvað athyglisvert, sem ekki reyndist. Gengið var
frá gólfi ofan á viðbyggingu og brotið var talsvert í eldhúsinu, apótekinu, til
að leita að menjum eftir eldstæðið, sem var í upphafi.
Jón Steffensen prófessor, sem hefur reynzt haukur í horni með viðgerðina,
gaf á árinu 50 þús.kr. í þessum tilgangi.