Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Blaðsíða 84
88
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Halley og Hekla Í222
Halley er þekktust allra halastjarna. Hún sést að jafnaði á 76 ára fresti.
í íslenskum miðaldaannálum og fleiri fornum ritum er hennar getið í
þrjú skipti sem hún kom í jarðarnánd. Miðaldamenn vissu þó ekki að
um sömu halastjörnu var að ræða enda litu þeir fremur á halastjörnur
sem himnesk tákn en náttúruleg fyrirbæri. í annálunum er Halley fyrst
getið 10656. Sennilega er sú vitneskja komin úr erlendum ritum því
ritöld mun tæplega hafa verið hafin á fslandi þá. Næst er annálar nefna
halastjörnu er einnig um Halley að ræða. Það er árið 1222.
Svo virðist sem íslensku heimildirnar um halastjörnu Halleys 1222
séu einn gleggsti evrópski vitnisburðurinn um ferðir hennar um innri
byggðir sólkerfisins þetta ár. í Austurlöndum fjær skráðu annálaritarar
atburðinn hjá sér og stjarnfræðingar eru löngu búnir að reikna út að
Halley hafi verið í sólnánd þann 28. sept. 1222. Þetta sýnir ásamt ýmsu
öðru að frumheimildir annálanna um halastjörnur eru oftast íslenskar
nema annars sé beinlínis getið (sbr. töflu 2).
íslensku heimildirnar um Halley 1222 eru margar (sjá töflu 1) en
einna gleggst er frásögn Sturlu Þórðarsonar í íslendingasögu. Hún sýnir
að íslendingar hafa fylgst með stjörnunni á útleið eftir sólnánd: „Þetta
sumar er næst var og nú hefir frá verið sagt tók sótt Sæmundur í Odda,
og andaðist inn sjöunda idus novembris. Það sama haust og öndverðan
vetur sást oft stjarna sú er kómeta heitir. Þá sýndist og sólin rauð sem
blóð“.7
Guðmundar saga Arasonar hin eldri segir um árið 1222: „Á þessu ári
urðu þessi tíðendi: Dráp Tuma Sighvatssonar at Hólum, níu menn féllu,
bardagi í Grímseyju ok drukknun hálfs fjórða tigar manna, elds upp-
kváma í Heklufelli, Snorri tók lögsögu, sén kómeta, rauð sól...“8
Konungsannáll 1222 segir hinsvegar orðfár að vanda: „Sén kómeta...
Eldur hinn fjórði í Heklufelli".9
Sigurður Þórarinsson (1968) telur að það hafi verið fín aska úr þessu
gosi sem hafi borist hátt í loft og valdið þeirri rauðu sól sem fornar
bækur nefna10.
Frásagnirnar af Halley 1222 gerir heimildir annála og fornrita um
6. G. Storm 1888: Henrik Höyers Annaler, bls. 58, Annales Regii, bls. 109, Gottskalks
annaler, bls. 318.
7. Sturlunga saga 1988, bls. 284.
8. Guðmundar saga Arasonar 1962, bls. 352.
9. G. Storm 1888, bls. 126.
10. Sigurður Þórarinsson 1968.