Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Page 90

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Page 90
94 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS nokkrir annálar „Myrkur hið mikla x kal. maí“.28 Hér er vafalítið átt við sólmyrkva sem varð réttu ári síðar, 10. maí 1194 (skv. gregoríönsku tímatali). Orðalagið „myrkur hið mikla“ stafar að öllum líkindum af því að skýjaður himinn hefur verið yfir íslandi þennan dag. Menn hafa því ekki séð að myrkrið stafaði af sólmyrkva. Sólmyrkvi sem varð fyrr á öldinni er þó mun athyglisverðari. Árið 1131 nefna nokkrir annálar „eclypsis solis“. Resensannáll 1131: „Eclypsis solis facta est iii kal. Aprilis quasi ora“, skrifar annálaritarinn eins og hann hafi aldrei trúað því fyrr en hann sá það með eigin augum að sólmyrkvi væri raunverulegt fyrirbrigði.2y Stjarnfræðilegir útreikningar sýna að 30. mars 1131 varð myrkvi á sólu yfir íslandi. Myrkvinn fór ekki yfir önnur byggð ból og á Vest- fjörðum huldi tunglið alla ásjónu sólar. Þar varð almyrkvi. í annálum er myrkvinn dagsettur 3. apríl 1131 skv. júlíönsku tímatali miðalda- manna, en það er 30. mars skv. gregoríönsku tímatali nútímans.30' 31 Klausan hefur á sér yfirbragð samtímaheimildar, myrkvinn er rétt dag- settur og lengd hans skráð - quasi ora - um það bil klukkustund. Upp- lýsingar sem þessar varðveitast ekki óbrenglaðar í munnlegri geymd áratugum saman. Þær hafa verið skráðar niður fljótlega eftir atburðinn og svo ratað inn í annálinn þegar hann var ritaður meira en öld síðar. Rök hafa verið færð að því að Sturla Þórðarson hafi skrifað Resensann- ál.32 Sé það rétt er þetta þriðja stjarnfræðilega skráningin sem frá honum er runnin og allar bera þær vott um mikla nákvæmni í tímasetningum. í sólmyrkvatöflunni (tafla 3) eru skráðir allir annálaðir sólmyrkvar milli 1100 og 1400. Þar koma enn fram furðu góðar stjarnfræðilegar upplýsingar annála. Allir sólmyrkvar eru þar rétt árfærðir að því undan- skildu að Lögmannsannáll og Annáll Flateyjarbókar telja myrkvann 1131 hafa verið 113233 og Annáll Flateyjarbókar nefnir “eclipsis sole“ árið 1328 en það er nokkuð augljóslega misritun fyrir “eclipsis lunae“.34 Hér er ekki ætlunin að fara nánar út í þessa sálma. 28. G. Storm 1888, Skálholtsannáll, Konungsannáll, Gottskálksannáll, Annáll Flateyjar- bókar. Hér er sleppt tilvísunum til blaðsíðutala. 29. G. Storm 1888, bls. 20. 30. N. Beckmann 1912, bls. 6-7. 31. Þorkell Þorkelsson 1933, bls. 7. 32. Sturlunga saga, skýringar og fræði, 1988, bls. xl. 33. G. Storm 1888, bls. 252. 34. G. Storm 1888, bls. 397. Sjá einnig Þorkel Þorkelsson 1933.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.