Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1989, Qupperneq 181
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1989
185
Haraldi Hannessyni, einkum bækur viðvíkjandi W.G. Collingwood.
Gjafa- og skiptabækur svo og keyptar bækur voru alls 208.
Að auki eignaðist safnið 10 myndbönd til viðbótar og milli 10 og 15
tímarit bættust við tímaritakostinn, aðallega með nýjum skiptafélögum.
Má ætla, að bókakostur safnsins sé nú nær 8500 bindi, tímarit ríflega
300 og myndbönd 20. Að auki á safnið nokkrar hljóðsnældur og íjölda
óskráðs smáprents, sem nú er að mestu flokkað á aðgengilegan hátt.
Skráð útlán bóka voru 349, en notkunin er þó mun meiri, þar sem
notkun handbóka og bóka til uppflettingar er ekki skráð. Þá jókst veru-
lega fjöldi annarra gesta en starfsfólks, sem nýtti sér bækur safnsins í
rannsóknarskyni og lesaðstöðu, sem er þó ófullkomin. 9 millisafnalán
voru skráð og nokkur fjöldi fólks fékk ljósrit úr ritum safnsins, en slík
þjónusta færist hvarvetna í vöxt.
Þá má nefna, að bókasafnið annast nú söfnun og flokkun á íslenzku
efni er varðar þjóðháttafræði og jaðargreinar hennar og sendir árlega
skrá um rit til Internationale Volkskundliche Bibliographie. Enn fremur
sendir safnið skrá yfir erlend tímarit þess í Samskrá um erlend tímarit í
íslenskum söfnum, sem Landsbókasafn gefur út. — Að lokum má geta
þess, að bókasafn Þjóðminjasafnsins gerðist félagi í ARLIS, Art Librar-
ies Society, sem hafur að markmiði að efla fagkunnáttu í söfnum á sviði
listiðnaðar og lista almennt, með því að vera upplýsinga- og starfsvett-
vangur félaga sinna.
Húsverndardeild. - Ýmsar ferðir voru farnar vegna skoðunar og við-
gerðar gömlu bygginganna.
Lilja Árnadóttir deildarstjóri fór ásamt þjóðminjaverði í ágúst eftir-
litsferð til gömlu húsanna norðanlands og var ákveðið í ferðinni um
viðgerð garnla bæjarins að Hólum í Eyjafirði,sem hafin mun verða
næsta vor og hefur Sverrir Hermannsson trésmíðameistari tekið að sér
trésmíðina.
Um skemmri ferðir er að segja, að farið var að Eyrarbakka vegna
viðgerðar gamla bakarísins og hússins Túns, að Vesturhópshólum og
Hofi á Skagaströnd og Fitjum í Skorradal vegna viðgerðar kirknanna
þar, til Vestmannaeyja vegna hússins Landlystar og til ísafjarðar vegna
viðgerðar gömlu húsanna þar. Sumar þessara ferða voru á vegum Húsa-
friðunarnefndar.
í ágúst var hafizt handa um að setja saman viði úr gamla bænum í
Tungunesi, sem sagt var frá í síðustu skýrslu, og fékkst húspláss til þess
í geymslum Þjóðskjalasafns. Mikið þarf eðlilega að endurnýja af viðum
og smíða margt nýtt. Var að mestu lokið við að setja saman og endur-