Óðinn - 01.01.1925, Qupperneq 26
26
ÓÐINN
Páll Briem amlmaöur.
Fæddur 19. okt. 1856. Dáinn 15. des. 1904.
í 25 ár hefur Gunnar B. Björnsson verið ritstjóri
að vikublaðinu Minnisóta Mascot. Er blað hans talið
vera eitt af allra bestu og áhrifamestu vikublöðum í
ríkinu Minnisóta. Auk þess hefur Gunnar setið um
allmörg ár í póststjórn í Minnióta, ennfremur í
bæjarráði þar, og er formaður frímúraradeildarinnar
þar og forseti kirkjusafnaðarins. Lætur Gunnar mikið
til sín taka í öllum fjelagsmálum, en ekki þó síst í
hinum Lútherska kirkjufjelagsskap Vestur-Islendinga,
á hann sæti á flestum kirkjuþingum hans. Er hann
þar einn af allra áhrifamestu mönnum innan þess
fjelagsskapar og strangur stuðningsmaður allra þeirra
göfugu hugsjóna, sem sá fjelagsskapur hefur haft
með höndum, og óspar á fje í þarfir hans.
Gunnar B. Björnsson er gáfumaður mikill og
mentaður vel, þótt ekki hafi notið æðri skólamentun-
ar. Hefur hann sjálfur rutt sjer braut til vegs og
frama. Snjall er hann í riti og ræðum og einn af
allra skörulegustu og áhrifamestu ræðumönnum ís-
lendinga vestan hafs. Honum er einkarljett um að
tala, hvort heldur er á ensku eða íslensku, jafnvígur
á bæði málin. Gunnar er fyrir löngu orðinn þjóð-
kunnur í þessu landi fyrir mælsku og einurð. Er
ekki smámönnum hent að etja við hann á þingum.
Orðhvass mjög og fyndinn og óvæginn þegar því er
að skifta.
Gunnar er sannur íslendingur, ann þjóð sinni og
ættjörð, þótt ungur færi hann frá íslandi. Hann á
mikið og gott bókasafn og er mjög vel að sjer í
sögu vorri og íslenskum bókmentum, fylgist vel með
öllu, sem er að gerast á ættjörðinni, sem ekki er
vanalegt um menn sem alla sína mentun og menn-
ingu hafa tekið í annari heimsálfu.
Gunnar B. Ðjörnsson er með stærri mönnum á
vöxt og gildur, vel á sig kominn og karlmannlegur á
velli, svartur á hár og fer vel, greitt aftur um eyrun
að fornum sið; hátt enni og hvelft, augun blá, drengi-
legur sýnum og góðmannlegur. Er hann eins og sagt
var um Skarphjeðinn, allra manna hermannlegastur.
Hann er fljótur til svars og orðheppinn í samkvæm-
um og á mannfundum og hrókur alls fagnaðar.
Gunnar er maður hógvær í skapi, prúður í fram-
göngu og yfirlætislaus með öllu, mildur af fje og
manna kurteisastur.
Kvæntur er Gunnar Ingibjörgu ]ónsdóttur ]óns-
sonar frá Hóli í Hörðudal í Dalasýslu. Er hún mjög
vel gefin og myndarleg kona. Eiga þau hjón 6 börn
á lífi, öll hin mannvænlegustu.
Einn af sonum þeirra hjóna, Valdimar að nafni,
17 ára gamall, fjekk fyrstu verðlaun árið sem leið,
þúsund dollara, í borginni St.-Poul í mælskusam-
kepni, sem háð var millum háskólanemenda í ríkinu.
Sannaðist á honum málshátturinn gamli, að sjaldan
fellur eplið langt frá eikinni.
Upham, North-Dahota U. S. A. — 18. marts 1925.
S. 7.
SL
Henrik Ibsen og Sören Kierkegaard.
Hjer á undan er mynd, sem sýnir Henrih Ibsen skáld á
ungum aldri, þrítugan eða vel það, en annars er það venju-
legast, að Ibsen er sýndur gamall á myndum. Verk Ibsens eru
mörg alkunnug hjer, bæði hafa kvæði hans mjög verið þýdd á
íslensku og ýms Ieikrit hans sýnd, og tvö höfuðrit hans,
„Brandur" og „Per Gynt“, eru til í íslenskum þýðingum, hið
fyrra þýtt af Matth. Jochumssyni, en hið síðara af Einari
Benediktssyni. — Sören Kierkegaard er mesti heimspekingur
Dana, fæddur 1813, og hefur haft mikil áhrif á andlegt líf á
Norðurlöndum, meðal annars er hann sjerlega talinn hafa haft
áhrif á H. Ibsen. Nýlega hefur komið út á íslensku dálítið kver
um S. Kierkegaard eftir dr. Kort K. Kortsen háskólakennara.