Óðinn - 01.01.1925, Side 44

Óðinn - 01.01.1925, Side 44
44 ÓÐINN Björn ritstjóri Förlar til feyskju fagurlima þeim sem þolrifjum þó var gæddur. — Veitt er vígðri mold vegleg fórn — höfuð hríðbarið, hærumjallað. Brostin er brá hins brúnamikla röska ritstjóra og reynda manns. Um hann oflengi öndverð bljes — hans um höfuðsvörð haustveðrátta. Brostu Ðirni í brekku fyr fíflar faðmstórir, fagurleitir. Mat hann manngildi, en móti tók sæmd í sælingsdal sólarmegin. Var hann viljastál vel og lengi hitað og hert á heimaafli; átti orðfimi á við tvo, fylgi og framsókn, fjögramaki. Meðal mannsaldur magni þrunginn ypti andviðris ennibarði; lengi Ijósgjöfull landi og þjóð bar hann bjarnyl sinn bygð í rústum. jónsson, og ráðherra. Hann var hertogi harður í sókn, vann með viðbrigðum vígi og flokka — vann með vaskleik og vitsmunum; þá með þrautseigju er þumbast við. Ljek hann landsmála lengi og vel — hæfinn — handsöxum, hendi lofti; barðist berskjalda og brynjulaus, reiddi röksemda Rimmugýgi. Átti þó öndvegi innan brjósts allri atgerfi er úti gengur. Hruðu höfuð af hári dökku hríð og harka — hvítlituðu. Svo fer sjerhverjum. Sinu og hríms lýtur lögmáli Ijósfrömuður. Báru af Birni banaorð harðir haustvindar hvaðanæfa; sýld frá Svalbarði sumarstygg næddi nærgöngul norðankylja. Út á andnesi eygði jeg sjón: elur aldur sinn Björn Jónsson. inn í hreggi blossa bálviti, bendir vel sjón sæfara úr svarta myrkri. Byltast bylgjur við bjargatær, syngur í súlum, svellur í gjám; napur náttvindur nístir og hvín; gefur glóðfeyki geyflu af salti. Viti á varðbergi varstu Björn, — eldur á andnesi, útvörður skygn. Þrífur þrumurödd þess manns eyra; valda vökunótt veðrabrigði. Þrífur þrummagn þess manns tungu, herðir hnúa, hvessir augu, hleypir hugdirfsku á Hemruvað, knýr karlmensku á kjölu Dofra. Standa í stórræðum styttir skap; ganga glóðís gerir viðkvæmni. Það var þín æfi þrjátíu ár, vörður vígroða, vökugarpur.

x

Óðinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Óðinn
https://timarit.is/publication/205

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.