Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 19

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 19
225 og etazráðs nafnbót 28. janúar 1817. Með konung- legri umboðsskrá 10. júní 1803 var hann skipaður í nefnd til að rannsaka embættisrekstur Olafs stiptamt- manns og fleiri embættismanna hjer á landi, þjónaði stiptamtmannsembættinu og amtmannsembættunum í suðuramtinu og vesturamtinu fyrir Stefán þórarinsson 1804—1805, og var frá 2g. marz 1810 til 20. marz 1813 í stjórnarnefnd stiptamtmannsembættisins (Lovs. for Isl. VI, 636 og VII, 357. 374. 461); aptur þjón- aði hann stiptamtmannsembættinu og amtmannsem- bættinu í suðuramtinu í fjærveru Castenskjolds frá 20. maí 1815 til 12. maí 1816. Eptir að ísleifur etazráð varð yfirdómari, bjó hann fyrst fá ár í Reykjavík og flutti sig síðan að Brekku á Álptanesi, og andaðist þar 23. júlí 1836. Hann var tvíkvæntur; fyrri kona hans var Guðrún (-j- 6. ma z 1801) jþorláksdóttir prests í Steinnesi Magnússonar; þei ra börn dóu ung; seinni kona hans var Sigríður (-j- 8. febr. 1860) Gísladóttir prófasts Thórarensens í Odda ; þeirra börn voru : sjera Gísli í Kálfholti og Jórunn, fyrri kona Páls málaflutn- ingsmanns Melsteðs (B 21). Útfararminning ísleifs Einarssonar er prentuð í Kph. 1837. 33. ióhann Árnason, fæddur á Belgsholti í Borg- arfirði ig. ágúst 1807; albróðir Arnórs sýslumanns (A 3); útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1826, var síðan skrifari hjá Hoppe stiptamtmanni og var skrifaður í stúdentatölu við háskólann 1828; cand. juris 16. apríl 1833 m©ð i* einkunn í báðum prófum. Árið eptir gjörðist hann aðstoðarmaður Bonnesens sýslumanns í Rangárvallasýslu og var settur fyrir sýsluna eptir lát Bonnesens (f 29. jan. 1835). Hann fjekk veitingu fyrir Jdngeyjarsýslu 24. febrúar 1835 en tók ekki við henni fyr en árið eptir ; setti hann þá bú á Rauðuskriðu og 15*

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.