Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 37
243
66. Niels Emil Weywadt, fæddur á Djúpavogi 14.
október 1842, sonur kammerassessors Weywadts, fyrr-
um verzlunarstjóra á Djúpavogi; útskrifaður úr Borg-
aradyggðarskólanum á Kristjánshöfn 1861; cand. juris
9. júní 1870 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann
drukknaði á Berufirði 22. september 1872.
67. Oddgeir Stephensen, fæddur áLágafelli í Mos-
fellssveit 27. maí 1812, sonur Björns kansellíráðs Stephen-
sens á Esjubergi og seinni konuhans Sigríðar Oddsdóttur
yfirdómsnótaríusar Stefánssonar á fnngeyrum; útskrif-
aður úr heimaskóla af Árnabiskupi Helgasonar 1831;
cand. juris 4. maí 1842 með 1. einkunn í báðum próf-
um. Hann var mörg ár í rentukammerinu, og þegar
hin íslenzka stjórnardeild var stofnuð (sbr. A 15), varð
hann 8. desember 1848 skrifstofuforstjóri í henni með
kammerráðs nafnbót og síðan 29. marz 1852 forstöðu-
maður hennar með jústizráðs nafnbót; 8. janúar 1858
varð hann jafnframt forstöðumaður fyrir 2. stjórnar-
deild í dómsmálastjórninni. Honum var veitt etazráðs
nafnbót 3. febrúar 1855, riddarakross dannebrogsorð-
unnar 31. desember 1857, heiðursmerki dannebrogs-
manna 6. október 1862, kommandörkross sömu orðu
af 2. flokki 5. janúar 1874, og sami kross af 1. flokki
2. ágúst s. á. Hann sat í nefnd þeirri, sem skipuð
var með konunglegri umboðsskrá 20. september 1861
til að gjöra uppástungur um fjárhagssamband íslands
og Danmerkur (Tfð. um stjórnarmál. ísl. I, 516).
Kona hans er dönsk og börn þeirra í Danmörku.
68. Oddur Vídalín, fæddur á þingeyrum 1759, son-
ur Halldórs Reynistaðar klausturhaldara Vídalíns og
Málfríðar Sighvatsdóttur frá Hlíðarhúsum þórðarsonar;
útskrifaður úr Hólaskóla 1779; cand. juris 26. janúar
1787 með 1. einkunn. Hann fjekk Barðastrandarsýslu
14. maí árið eptir, en var vikið frá 1801 af amtmanni