Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 77
2«3
26. Stefán Gunlögsen, fæddur á Hallormsstað 9.
október 1802, sonur sjera Gunnlaugs þórðarsonar,
prests þar, og fyrri konu hans Ólafar Högnadóttur
bónda Torfasonar; útskrifaður úr Bessastaðaskóla 1825;
exam. juris 31. október 1826 með 1. einkunn i hinu
teóretiska og 2. einkunn í hinu praktiska prófi. Eptir
það var hann á skrifstofu Moltkes stiptamtmanns í
Álaborg og fjekk Borgarfjarðarsýslu 24. maí 1828, og
bjó þar á Belgsholti og á Krossi á Akranesi; síðan
fjekk hann Gullbringu- og Kjósarsýslu 24. febrúar 1835,
og með kgsúrsk. 9. október 1838 var honum leyft að
hafa embættaskipti við Morten Hansen Tvede land-
og bæjarfógeta, þannig að hann s. d. var skipaður
landfógeti og 4. desember s. á. bæjarfógeti í Reykja-
vík; 28. júní 1847 fjekk hann kammerráðs nafnbót.
Hann fjekk lausn frá embættum sínum 1848, frá bæjar-
fógetaembættinu 30. júní og frá landfógetaembættinu
28. júlí, en þjónaði þó landfógetaembættinu til i.ágúst
1849; var hann þá settur fyrir Borgarfjarðarsýslu og
þjónaði henni þangað til Brynjólfur Svenzon tók við
árið eptir. Síðan 1851 hefur hann verið í Kaupmanna-
höfn embættislaus. Hann sat í embættismannanefnd-
inni í Reykjavík 1839 og 1841. Stefán kammerráð er
tvíkvæntur; fyrri kona hans var Ragnhildur (-j* 15.
október 1841) dóttir Benedikts assessors Gröndahls, og
þeirra börn: Ólafur Dr. phil., í Parfs; Bertel, skóla-
genginn í Rómaborg, og Ólöf. Seinni kona hans var
Jórunn (•{•1871) Guðmundsdóttir bónda á KrókiíFlóa.
27. Torfi Thorgrímsen, fæddur á Lambastöðum á
Seltjarnarnesi 8.júní 1790, albróðir Halldórs Thorgrím-
sens (B n). Hann fór utan og leysti af hendi undir-
búningspróf við háskólann og síðan próf í dönskum
lögum 1817 með 1. einkunn í báðum prófum. Kom
hann þá út aptur til íslands og var fyrst í Reykjavík
og flutti mál við yfirdóminn, en gjörðist síðan verzl-