Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 13
arsýsla veitt Jónassen sýslumanni s. d., og settist hann
þá að í Hjarðarholti í Staíholtstungum ; 16. ágúst 1878
varð hann bæjarfógeti í Reykjavík. Hann er tvíkvænt-
ur, og var fyrri kona hans Elín (-f 5. apríl 1878) dóttir
Magnúsar jústizráðs Stephensens í Vatnsdal (A 64), en
seinni kona hans er Carólína dóttir Eðvarðs Siemsens,
konsúls og kaupmanns í Reykjavik.
18. Einar Thorlacíus, fæddur á Saurbæ í Eyjafirði
18. nóvember 1851, sonur sjera Jóns Einarssonar Thorla-
cíusar, síðast prests þar, og fyrri konu hans Ólafar
Hallgrímsdóttur prests á Hrafnagili Thorlaciusar; út-
skrifaður úr Reykjavikurskóla 1874; cand. juris 13.
júní 1879 með 2. einkunn, og settur sýslumaður í Skapta-
fellsýslu 3. júli s. á.; 30. júní 1880 var honum veitt
N orður-Múlasýsla.
19. Erlendur Sigurðsson, fæddur á Brekkum í Skaga-
firði 1728, útskrifaður úr Hólaskóla 1751; gjörðist
djákni á þúngeyrum hjá Bjarna sýslumanni Halldórs-
syni og átti barn með Ástríði dóttur hans (sbr. A 27),
fór síðan utan og var skrifaður í stúdentatölu við há-
skólann 1758 og varð cand. juris 22. maí 1762 með 2.
einkunn í báðum prófum; bjó síðan embættislaus á
Brekkum í Skagafirði og andaðist þar árið 1800.
Kona hans var Karitas Sigurðardóttir sýslumanns í
Dalasýslu Vigfússonar, og áttu þau einn son, sem
farnaðist illa.
20. Franz Eðvarð Siemsen, fæddur í Reykjavík i4.októ-
ber 1855, sonur Eðvarðs Siemsens, konsúls ogkaupmanns
þar, og konu hans Sigríðar J>orsteinsdóttur löggæzlu-
manns í Reykjavík Bjarnasonar; útskrifaður úr Reykja-
víkurskóla 1875; cand. juris 5. júní 1882 með 2. einkunn.
2i. Grímur Johnsson, fæddur á Görðum á Akra-
nesi 12. október 1785, sonur sjera Jóns Grímssonar,
prests þar, og konu hans Kristínar Eiríksdóttur frá
Helluvaði á Rangárvöllum Eirikssonar; útskrifaður úr