Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 40
246
(Lovs. for Isl. V, 411) var suður- og vestur-amtinu
skipt í tvö ömt, og var Olafur þá skipaður amtmaður
yfir vesturamtið, er náði yfir Vestfirðingafjórðung, og
14. apríl 1790 var hann jafnframt skipaður stiptamt-
maður, en Meldal varð þá amtmaður yfir suðuramtinu.
Á þessu var gjörð sú breyting með kgsúrsk. 17. apríl
1793 (Lovs. for Isl. VI, 107), að Ólafur stiptamtmaður
fjekk amtaskipti og var skipaður yfir suðuramtið
—Meldal hafði andazt 19. nóvember 1791—en Vibe
(-{• 11. febr. 1802) yfir vesturamtið. Með konunglegri
umboðsskrá 10. júní 1803 (Lovs. for Isl. VI, 636) var
skipuð nefnd til að rannsaka stjórn opinberra málefna
á íslandi, og var Ólafur stiptamtmaður þá leystur frá
embættisstörfum sínum fyrst um sinn1, en um árangur
af þeim rannsóknum er lítið kunnugt, og með kgsúrsk.
6. júnf 1806 (Lovs. for Isl. VII, 29) var Ólafi stiptamt-
manni veitt lausn í náð frá embættum sínum, eptir
beiðni hans, með 800 rd. eptirlaunum og Viðey til á-
búðar afgjaldslaust. 28. marz 1786 hafði konungur
sæmt hann með hinum stóra heiðurspeningi úr gulli,
„pro meritis“, fyrir höfðingsskap hans við snauða menn
í harðindunum. Ólafur stiptamtmaður bjó fyrst á Leirá,
sfðan á Bessastöðum, Elliðavatni, Sviðholti, Innra-Hólmi
og sfðast í Viðey og andaðist þar 11. nóvember 1812.
1) Jafnframt var Ludvig Eriehsen, amtmaður 1 vestur-
amtinu (sbr. A 36), settur til að gegna fyrst um sinn stipt-
amtsmannsembættinu og amtmannsembættinu í suðuramtinu,
en hann andaðist 7. maí 1804 ; var Stefán amtmaður þórar-
insson þá settur til að gegna embættum Erichsens auk norð-
ur- og austuramtsins, og tók hann ísleif yfirdómara Einars-
son 8. júní s. á. fyrir umboðsmann sinn syðra; 26. september
1804 var Dr. juris greifi Trampe skipaður amtmaður í vestur-
amtinu og tók við því embætti 25. nóvember s. á., og22. ágúst
1805 var hann jafnframt settur stiptamtmaður og amtmaður
í suðuramtinu; 6. júní 1806 fjekk hann veitingu fyrir þeim
embættum, en Stefán Stephensen yfirdómari var þá skipaður
amtmaður f vesturamtinu.