Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 24
230
6. mai 1848 varð hann bæjarfógeti og ráðamaður i Ála-
borg, birkidómari í Álaborgarbirki og hjeraðsfógeti í
nokkrum hluta Fleskum hjeraðs, og þjónaði þeim em-
bættum þangað til hann fjekk lausn frá embætti 22.
september 1873. Hann fjekk jústizráðs nafnbót 5. okt-
óber 1850 og etazráðs nafnbót 22. september 1873.
Hann andaðisti Álaborg 7. júlí 1881. Hann sat á þrem-
ur fyrstu alþingum sem þjóðkjörinn þingmaður og á
ríkisþingi því, er samdi stjórnarskrá Danmerkur vetur-
inn 1848 — 4Q (sbr. A 15); einnig sat hann í landbún-
aðar-og skattanefndinni 1845 (sbr. A 100). Kona hans
var dönsk, og einn af sonum þeirra var Jón landshöfð-
ingjaritari (A 45).
42. Jón Johnsen, fæddur á Odda á Rangárvöllum
11. desember 1843, sonur Ásmundar prófasts Jónsson-
ar og Guðrúnar J>orgrímsdóttur gullsmiðs á Bessastöð-
um Thomsens ; útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1863;
cand. juris 16. júní 1870 með 2. einkunn 1 báðum próf-
um. Hann var s. á. settur sýslumaður í Eyjafjarðar-
sýslu og árið eptir í Húnavatnssýslu og fjekk veitingu
fyrir Suður-Múlasýslu 29. júní 1872. Kona hans er
J>uríður Hallgrímsdóttir prófasts Jónssonar á Hölmum;
þau búa á Eskifirði.
43. Jón Jónsson, fæddur í Stafholti 23-janúar 1740,
sonur Jóns prófasts Jónssonar og seinni konu hans
Ragnheiðar Gísladóttur frá Máfahlíð Jónssonar, systur
Magnúsar amtmanns; útskrifaður úr Skálholtsskóla
1759; cand. juris t. júní 1768 með 2. einkunn. Hann
var skipaður varasýslumaður í Rangárvallasýslu 8. marz
s. á. til aðstoðar J>orsteini sýslumanni Magnússyni, og
tók við sýslunni fyrir fullt og allt 20. júní 1785. Jón
sýslumaður bjó á Seljalandi, Stórólfshvoli og seinast á
Móeiðarhvoli og andaðist þar 20. ágúst 1788. Kona
hans var Sigríður (f 11. maí 1824) þorsteinsdóttir sýslu-
manns Magnússonar (A 105), og þeirra börn: J>orsteinn