Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Blaðsíða 76
í82
sonar, og þeirra börn: Björn bóndi á Belgsholti 1 Borg-
arfirði, og Guðrún kona sjera Jóns Thórarensens á
Tjörn i Svarfaðardal.
24. Sigurður Thorgrímsen, fæddur á Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd g. október 1782, sonur Björns prófasts J?or-
grimssonar, síðast á Setbergi, og fyrri konu hans Helgu
Brynjólfsdóttur sýslumanns Sigurðssonar 1 Hjálmholti;
útskrifaður úr heimaskóla 1800. Fór hann síðan utan
og komst í rentukammerið og varð kopíisti þar io.
júní 1811 ; 14. október s. á. tók hann próf í dönskum
lögum með 1. einkunn í báðum prófum. Hann var
skipaður landfógeti á íslandi 18. maí 1812 og 15. júlí
s. á. jafnframt bæjarfógeti í Reykjavík, hvorttveggja
frá 1. ágúst 1813. Frá þeim embættum fjekk hann
lausn 1828, frá landfógeta embættinu 24. maí og frá
bæjarfógetaembættinu 2. júlí, og andaðist í Reykjavík
21. febrúar 1831. Kona hans var Sigríður (-J- 1878)
Jónsdóttir skipstjóra Vídalins; þau áttu ekki börn.
25. Skúli Magnússon, fæddur í Búðardal 6. apríl 1768,
sonur Magnúsar Ketilssonar, sýslumanns í Dalasýslu,
og fyrri konu hans Ragnhildar Eggertsdóttur frá Skarði
á Skarðsströnd Bjarnasonar; útskrifaður úr heimaskóla
1791 og skrifaður árið eptir í stúdentatölu við háskól-
ann ; exam. juris 26. janúar 1796 með i.einkunní hinu
teóretiska og 2. einkunn í hinu praktiska prófi. Hann
gjörðist sama ár lögsagnari föður síns i Dalasýslu og
fjekk veitingu fyrir henni 18. apríl 1804 og þjónaði
henni til dauðadags; kammerráðs nafnbót fjekk hann
21. maí 1831. Skúli sýslumaður bjó á Skarði á Skarðs-
strönd og andaðist þar 14. júní 1837. Kona hans var
Kristín (f 9. nóv. 1851) Bogadóttir frá Hrappsey Bene-
diktssonar, og þeirra börn: Ragnhildur, kona Jporvald-
ar umboðsmanns Sívertsens i Hrappsey; Kristján sýslu-
maður á Skarði (B 17) og Kristín, kona Jóns Eggerts-
sonar í Fagradal.