Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 27

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.10.1882, Page 27
233 hann Borgarfjarðarsýslu io. maf 1847 og Mýra- og Hnappadalssýslu 1. júní 1848, en þjónaði jafnframt Borgarfjarðarsýslu til 20. júlí 1849; vesturamtinu þjón- aði hann frá 1. september 1847 til i- júlí 1848 í fjær- vist Bjarna amtmanns Thorsteinsonar. Hann varð 2. assessor og dómsmálaritari í yfirdóminum 16. maí 1850, 1. assessor 31. marz 1856 og jústitíaríus 7. nóvember 1877. Frá því um haustið 1851 þangað til sumarið 1852 þjónaði hann bæjarfógetaembættinu í Reykjavík sem settur. 2. ágúst 1874 var hann sæmdur riddara- krossi dannebrogsorðunnar. Hann sat á alþingi 1855 sem þjóðkjörinn þingmaður, á alþingi 1859 og öllum þingum síðan hefur hann setið sem konungkjörinn þing- maður. Jón háyfirdómari er tvíkvæntur; fyrri kona hans var Jóhanna (-j- 21. maí 1855) Bogadóttir frá Staðarfelli Benediktssonar; börn þeirra eru: sjera Pjet- ur á Presthólum, sjera Brynjólfur á Hofi í Álptafirði, Jarðþrúður, og Jóhanna kona sjera Sófoníasar Hall- dórssonar á Goðdölum; seinni kona hans er Sigþrúð- ur dóttir sjera Friðriks Eggerz í Akureyjum, og elzta dóttir þeirra Arndís er gipt Guðmundi lækni Guð- mundssyni á Laugardælum. 48. JÓn Skúlason, fæddur Ii.nóvember 1736, son- ur Skúla landfógeta Magnússonar og konu hans Stein- unar Björnsdóttur prófasts Thorlacíusar á Görðum á Álptanesi; útskrifaður úr Hólaskóla 1753; cand. juris 8. nóvember 1755 með 2. einkunn í báðum prófum. Hann gjörðist síðan aðstoðarmaður föður sfns og var skipaður varalandfógeti 22. júní 1763 með fyrirheiti um landfógetaembættið, þegar það yrði laust, en and- aðist í Viðey á undan föður sínum 10. marz 17891. 1) Skúli landfógeti fjekk lausn frá embætti 17. maí 1793 og andaðist 9. nóvember árið eptir, nærri 3 um áttrætt, fæddur 12. desember 1711.

x

Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags
https://timarit.is/publication/228

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.