Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1886, Blaðsíða 102
294
poplar með silfurgrænum blöðum; hér og hvar eru hrís-
grjónaekrur, sumstaðar viðarull og alls konar aldintré. |>etta
frjóva og fagra land stingur mjög í stúf við eyðimerkurnar í
kring; þar er enginn vatnsdropi, ekkert strá, ekkert dýr,
allt stiknað af sólarbruna; á ræktaða landinu er mjög þétt-
býlt, hvert þorpið við annað. Samarkand er frægur bær í
sögunni; þar bjó Tamerlan, herkonungurinn mikli; eru þar
margar fornmenjar frá þeim tímum. |>ó nú Eússar séu
búnir að friða þessi lönd, þá fer þó fjarri því, að þeir séu
vel látnir af íbúunum; þeir eru rammir Múhameds-menn og
hata kristna menn af öllu hjarta; áður en Rússar komu
þangað, gat enginn kristinn maður verið þar óhultur um
líf sitt, en nú getur Európumaður farið þar um landið
þvert og endilangt, án þess honum sé gjört mein; svo eru
þeir hræddir við Eússa. I Samarkand og öðrum bæjum
búa margir Gyðingar; eru þeir mjög fegnir yfirráðum Eússa,
því Múhameds-menn léku þá mjög hart; þeir urðu að
hafa sérstakan klæðnað, svo þeir þekktust; þeir máttu aldr-
ei fara á bak á hesti eða asna, urðu að hneigja sig djixpt,
hvenær sem þeir mættu Múhamedsmanni, og það var ekki
til neins fyrir þá að bera sig upp, þó þeim væri gjört
rangt til.
Margir ferðamenn rússneskir hafa á seinni árum rann-
sakað Turan, og’skal hér að eins getið um Alb. Begel;
hann er ágætur náttúrufræðingur; hann hefir skoðað fjall-
löndin austan til við Buchara, t. d. Darwas; þar eru geysi-
há fjöll og skriðjöklar sumstaðar; hann hefir líka farið til
Merw og rannsakað takmarka-héruðin milli Turan og Af-
ganistan; hann hefir mjög auðgað þekkingu manna á landa-
fræði og náttúrufræði þeirra héraða.
Eússar hafa mikinn huga á að koma sér vel fyrir í
Turan, svo þeir þaðan geti brotizt til valda og verzlunar
við hin suðlægari auðugu lönd; spara þeir engan kostnað
til þess að koma samgöngunum í lag; hafa þeir helzt
verið að hugsa um tvennt; annað er það, að veita Amú
Darja í sinn forna farveg til Kaspíhafs, hún rennur
nú í Aralvatnið; en hitt er að leggja járnbraut frá Kaspí-