Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1886, Blaðsíða 120
312
Danir hafa nú um nokkurn tíma gert út ýmsa vís-
indamenn og sjóliðsforingja til þess að rannsaka og mæla
vesturströnd Grænlands; hefir stjórnin lagt til þess allmik-
ið fé, enda hefir mikið á unnizt, svo menn þekkja nú
mestan hluta vesturstrandarinnar ágætlega vel, bæði hvað
landafræði og jarðfræði snertir. Seinustu árin hafa þeir
líka reynt til að rannsaka suðurhluta austurstrandarinnar
og hefir þeim þegar töluvert á unnizt. |>essi rannsókn á
austurströndinni byrjaði 1883; sá heitir G. Holm, sjóliðs-
foringi, sem fyrir ferðunum hefir ráðið. Seint í júlí 1883
héldu þeir Holm á stað til austurstrandarinnar. Með hon-
um voru 40 manns, og þar á meðal 3 vísindamenn: Garde
sjóliðsforingi, Knutsen steinafræðingur norskur, og Eberlin
læknir. þetta sumar komust þeir norður á 61° n. br.,
sneru svo við aptur, en skildu þar eptir töluverðan vista-
forða; þessi ferð átti að eins að vera til undirbúnings.
Veturinn 1883—84 dvöldu þeir í Nanortalik, á vesturströnd-
inni. Um vorið 1884 5. maí hélt Holm aptur á stað;
ætlaði hann sjálfur að fara með nokkra menn svo langt
sem auðið væri norður eptir austurströndinni, en hinir áttu
að snúa við og mæta honurn svo aptur, er hann kæmi að
norðan sumarið 1885. Voru þeir nú 37 saman, karlar og
konur; höfðu þeir 4 kvennbáta og 8 húðkeipa einróna
(kajaka); 28. júní komust þeir þangað, sem þeir höfðu látið
eptir vistirnar; nokkru norðar hittu þeir Skrælingja af
austurströndinni og fylgdust með þeim norður á við; fengu
þeir ísa mikla og illviðri, og 17. júlí voru Grænlendingar
frá vesturströndinni orðnir svo skelkaðir, að margir vildu
snúa aptur, og fóru þeir á 2 bátum; héldu þeir Holm enn
norður og voru víða skriðjöklar fram í sjó; var sá þeirra,
er Puisortak heitir, einna geigvænlegastur; þar eru langa
leið fyrir landinu jökulhamrar óslitnir, en opið haf á aðra
hönd. A 62° 38' n. br. sneru þeir Garde og Eberlin við,
en Holm og Knutsen héldu áfram; höfðu þeir 6 ræðara
á bátum sínum tveimur. Austanmenn fylgdu þeim á 4
bátum. þeir Garde og Eberlin komu 26. september til
Nonortalik og ,voru þar um veturinn.