Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Page 9

Eimreiðin - 01.09.1897, Page 9
169 mikil áhrif hafði þessi atburður á Asgerði, að hún lifði skamma stund eptir.----- Sveitungar Ara frjettu lát hans. Sumir þögðu og sögðu fátt. En aðrir voru hróðugir yfir, hvað þeir höfðu sloppið vel við hann, já, rækalli vel. Sögðu að fólkið hefði fjandann ekki verið of gott til að sjá um hann. Og frænka hans alls ekki of góð til að koma honum í jörðina, Svona ættu hrepparnir að hafa það með þessa bjálfa. Það væri mátulegt. Skömmu seinna fjekk Þorbjörg í Gerði brjef og sendingu. Settu þá ýmsir sveitungur hennar upp stór augu og græn andlit. Brjefið var frá prestshjónunum á Kálfá. Þau sendu henni hest Ara heitins og sögðu, að það hefði verið ósk hans, að hún ætti hann. Enn fremur sendu þau tvö hundruð krónur frá sjer í þókn- unar skyni fyrir að hún hafði lofað Ara að vera. Sumir urðu óðir og uppvægir og sögðu, að Ari heitinn hefði ekkert átt með, að gefa hestinn. Hann væri erfðafje, sem systkini hans ættu, og þau væru flest á hreppnum og þyrftu arfsins með. En Jón á Heiði varð svo hátalaður og óðamála yfir þessum dæmalausa hugs- unarhætti frá upphafi til enda, að oddvitinn ljet að síðustu þá skoðun sína í ljósi, að Ari hefði ekkert af hreppnum þegið. Þor- björg virtist bezt að hestinum komin, enda svaraði það tæplega kostnaði að reyna að gera dauðan manninn ómerkan að þessu. Og við það sat. Annar alþingismaður sýslunnar, sem var gagnkunnugur »Hlíðarættinni«, og þekkti og skyldi hin ægilegu áhrif holdsveik- innar, bar það undir kjósendur sína á þingmálafundi, hvort þeim sýndist eigi brýna nauðsyn til bera að alþingi væri fengið til að skerast eitthvað í leikinn í þessu holdsveikismáli. Að vísu játtu nokkrir því, en aðrir þögðu, og ekki var samþykkt nein áskorun til þingsins um það. Samt gjörði þessi þingmaður allt sem í hans valdi stóð, til að fá þingið til að gjöra eitthvað í málinu. Sýndi hann fram á, að svona aumingja vildi enginn hafa, enda hefðu menn góðar og gildar ástæður fyrir því að sumu leyti. Það væri hrein og bein skylda landsins að hafa sjerstakt hæli handa þeimr bæði til þess að forða öðru fólki við samneyti við þá, og til þess að firra sjúklingana sjálfa þeirri kveljandi og nagandi meðvitund, að vita sjer sí og æ alstaðar ofaukið innan um annað fólk, eins- og nú hagaði til, algerlega útilokaða frá allri læknishjálp o. s. frv. •— — En þingið átti svo annríkt. Það var að fást við launa- \

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.