Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Qupperneq 27

Eimreiðin - 01.09.1897, Qupperneq 27
hafa verið hjá mjer, en með hvílíkri angist veslings mennirnir hafa kom- ið til min, er eigi unnt að lýsa. Aðalástæðan til þess er án efa sá orð- rómur, að jeg ætti að hlýða þeim öllum yfir og spyrja þá út úr og um daginn kvartaði einn þeirra yfir þvi, að þeir ekki kynnu neinar ritning- argreinar á latinu. Ef mjer leyfðist að álykta frá einstökum mönnum til stjettarinnar i heild sinni, þá mundi mjer veita erfitt að gefa til kynna, hver væri maklegur biskupstignarinnar. Ef sumir þeirra væru jafnvel að sjer í guðfræði, rins og þeir eru i lögum, þá yrðu lítil vand- kvæði á að finna einhvern. A staðnum hjerna er mikill fjöldi fólks og þar á meðal sægur af gömlum kerlingum. Valdsmaður sá, er hefur yfirum- sjón með stólnum1 hefur ritað amtmanni á þá leið, að varla mundi annað fyrir höndum en að lofa kerlingum þessum að vera kyrrum og láta þær njóta lifsuppeldis. En amtmaður hefur svarað aptur, að þótt hinn fyrri biskup hafi gert staðinn að umrenningabæli og sjúkrahúsi, þá geti það eigi skuldbundið eptirmenn hans til hins sama. Hversu ástatt sje með biskupsstólinn að öðru leyti og hversu umsjónarmanni hans sje varið, getur Björn sýslumaður Halldórsson, sem vikið hefur verið frá embætti og nú eptir sögn ætlar sjer til Hafnar, bezt borið vitni um. Prófastur nokkur Jón Sigurðsson að nafni, sem af frjálsum vilja hefur sagt af sjer embættinu, hyggur einnig til utanfarar. Hann er sagður mesti óróaseggur og nýungagjarn mjög, og er þvi vissara að byggja eigi ofmikið á orðum hans og uppástungum. Jeg heyri sagt að hann sje einkar vel að sjer í fornurn fræðum, og má þvi vel vera að hann kunni að koma að gagni i því efni. Nú vil jeg minnast lítið eitt á lifnaðarháttu manna hjer i landi,. eptir þvi sem mjer hefur fyrir augu borið. Islendingar eru að eðli hraustir og sterkir, og á loptslagið mikinn þátt í þvi. Peir venja sig við harða fæðu, sem varla mundi henta oss Dönum. Hin venjulega fæða þeirra er harðfiskur með dálitlu af smjeri, sem opt er bæði grænt og gult og blandað hári og öðrum óþverra, og við þenna kost una þeir betur en margar aðrar þjóðir við mesta sælgæti. Til drykkjar nota þeir súra mjólk, sem þeir kalla skyr. Vinnustúlka nokkur, sem jeg hafði ráðið, varð dauðveik af mat þeim, sem við höfðum með okkur, og þegar hún var oðinn heilbrigð aptur, vildi hún ekki vera eina stund lengur í vistinni, því hún hjelt, að það væri fyrirætlun mín að taka hana af lífi með eitri. Yfir höfuð að tala finnst mjer þeir vera svo- óþriflegir, að jeg opt og tíðum fæ viðbjóð á að sjá til þeirra. Peir sitja opt á rekkjum sínum og matast, og ægir þar saman við hliðina á þeim tóbaki, harðfiski, smjeri og ull. Umgengi þeirra innbyrðis er svo blygð- unarlaus, að eigi getur verri verið. Bæði menn og konur liggja alsber hvað innan um annað i hreysum sínum, og fleti þeirra eru ekki hótinu betri en sökudólga þeirra, er þræla i járnum hjá oss. Hverjar afleiðing- ar þetta hafi i för með sjer, er hægt að gera sjer í hugarlund. Að hafæ getið 2—3 börn í lausaleik, er eigi skoðað sem tiltakanlegt afbrot, heldur miklu fremur sem ærleg sök. Það er álitin einskonar via emer- gende (framavegur) ef einhverjum tekst á þann hátt að komast yfir dótt- 1 Það var Skúli Magnússon, er um þær mundir var sýslumaður í Skaga- fjarðarsýsla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.