Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 56

Eimreiðin - 01.09.1897, Síða 56
2l6 unz honum fannst hann sjálfur vera að sofna. — Það fönnin var, sem byrgði lík hins liðna. »Þar kúrir, trú jeg, karlinn enn þá! sjerðu! svo æpti bóndi, er birti og út hann leit. »Svo rektu’ hann burt; í dag er jóladagur,« anzaði konan. »Gá hvort Gyðingssneypan við barm sjer hefur bundið fastan pokann. Sá vill nú út með vörur sínar. Lítt' á: Hann starir inn sem ætli okkur hjerna að eiga nóg að gefa fyrir glingur.« »Lát mig þó sjá hvað skreppu skömmin geymir. — Nú, sýn mjer, karl!« Og út þau bæði arka. Þá glórði í frostið í hins látna augum. Þá blikna þau og æptu bæði af ótta og íllum hrolli: »Drottinn komi til! hann hefur orðið úti!« — Þau reisa hann við, og barnsins böggull fylgdi. Þau krækja sundur kufli hans •— og sjá: um háls á honum hangir Margrjet litla, barn þeirra sjálfra — liðið lík sem hann! Ei þruma slær, ei eiturormur bítur sem ofboð það er heltók þessi hjón. Svo hvítnaði ekki hjarnið eins og hann, og harðara gellur móðirin en veðrið. »Guð hefur hefnt. Því hel og harka okkar, en hretið ekki, myrti þetta barn. Og svo mun okkur úthýst líkt og honum þá berjum við að náðardyrum Drottins!« — Þá fært varð yfir skóginn skyndiboð frá bæ þeim barst þar dóttirin hafði dvalið. Hún haíði viljað heim til foreldranna á laun og hafði villst í sögðu veðri. Nú lá hinn gamli liðinn inn við eldinn, og bóndinn hjá þar húkti likur nánum af hryggð og sút og reyndi að rétta líkið

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.