Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Qupperneq 60

Eimreiðin - 01.09.1897, Qupperneq 60
220 var að virða fyrir mjer, hve hlíðin endurskein fagurlega í því, gul- mórauð eins og hún var á að líta af bliknuðu fjalldrapa og birki- laufinu. Svo leit jeg heim til bæjarins. Hann var með sömu um- merkjum og þá er jeg skildi síðast við hann, nema að sumar hús- hliðarnar höfðu verið þaktar nýlega með nýju torfi, byrgðar rifur og troðið upp í gættir. — Sunnan undir bæjarveggnum austast var viðarköstur, er rifinn hafði verið og borinn heim, og ætlaður til eldiviðar. Hjekk gulnað og skorpið laufið á liminu, en sumt var fallið niður og lá í flekk undir kestinum og kringum hann. Og vestan undir kestinum sat — jú, þar sat mamma mín á tveim strengbútum, er lágu hvor ofan á öðrum upp við vegginn. Við hlið hennar reis upp hrífuskaptsbrot, og var að sjá sem það hefði verið notað til að ganga við það. Hún hjelt á karlmanns- vetlingi, sem hún var nýbúin að fella af. Hendurnar lágu í kjöltu hennar, og hún horfði niður fyrir sig, eins og hún væri að hlusta eptir einhverju, eða væri í þungurn hugsunum, og mín hafði hún auðsjáanlega ekki orðið vör. En hvað undur var hún orðin breytt! Hún var orðin miklu bognari en þá er jeg sá hana síðast, er jeg fór að heiman. Lík- ami hennar var visin og fallin saman, gráa hárið hennar var orðið enn grárra, andlitið enn fölara og hrukkóttara. Og þegar jeg steig af baki, þá hrökk hún hálfgjört saman. Hún leit í áttina til min, og þó ekki á mig, heldur eins og út i bláinn, en með afar-órólegum og spyrjandi svip. Jeg gekk til hennar og sagði um leið og jeg breiddi út arma mína til að faðma hana að mjer: »Komdu blessuð og sæl, elsku- mamma mín!« Hún kipptist við, er hún heyrði rödd mína, sleppti prjónun- um og vetlingunum, stóð upp, og var þó svo að sjá sem hún hefði veika burði til þess, kom með faðminn og bauð mjer munn- inn til að kyssa á hann; en tilburðir hennar voru svo sem hún sæi mig ekki, sem værum við stödd í niðamyrkri, og hún sagði í veikum róm: »Komdu sæll! Guð blessi þig, barnið mitt! Ertu nú loksins kominn? Jeg hefi beðið og vonað eptir þjer lengi — lengi, — að þú kærnir, en........og nú tók þyngsla-hóstakviða fyrir mál hennar. En að sjá þetta samanskorpna blað! Það þurfti auðsjáanlega
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.