Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1897, Page 62

Eimreiðin - 01.09.1897, Page 62
222 liðkazt, og jeg hefi ofurlítið getað prjónað mjer til skemmtunar. I dag hefi jeg verið með lengsta móti úti, og hafði jeg þó ekki að prjóna nema fyrst. Bandið er þrotið, sem jeg spann áður en jeg missti sjónina. Það stóð rjett heima í vetlingana, sem jeg ætlaði þjer. Jeg hefi einhvernveginn ekki getað fengið af mjer að fara inn. Mjer finnst einhvernveginn á mjer, að bráðum muni hvessa og kólna, og þá kem jeg ekki út að svo stöddu.« Jeg gekk fram á hlaðið og litaðist um. Jeg sá að hann var farinn að færa lausaþoku á hnúkana ytra, og að norðanverðu var vatnið farið að ýfast og sortna af vindkisu, og jeg heyrði veður- þytinn úti í brekkunum og mónum. »Yiltu ekki koma inn, mamma?« sagði jeg. »Hann fer þegar að hvessa á utan, og verður sjálfsagt kaldur.« »Jú, jeg skal undir eins konta inn, og hætta að vera úti. Já, jeg vissi það, að þessi blessuð hlýindi mundi bráðum verða á enda,« og um leið strauk hún hendinni um vanga sjer, þann er vissi að sólunni. Svo leit hún upp, og jeg sá, að hún hvarflaði augun- um yfir hraunið og vatnið, fram með hlíðinni og suður eptir dalnum. Svo leit hún niður fyrir sig, og voðalegur raunasvipur færðist yfir alla ásjónu hennar, og mjer þótti líkami hennar og limir hnípast og heykjast meir en nokkru sinni áður; svo rjetti hún mjer þegjandi höndina. »Já, við skulum koma inn, og jeg skal hjálpa þjer, elsku mamma mín!« En þegar við komurn fram fyrir kampinn, kom vindbylur utan hlaðið, svo napur og nístingskaldur, eins og hann hefði lagt leiðir sínar yfir margar þingmannaleiðir íss og alsnjóugs lands. Bar hann með sjer feyskna kvisti og fölnuð og visin laufblöð ut- an af mónum, sveiflaði þeim suður eptir hlaðinu, og settist sumt að sunnan undir veggnum, en sumt sunnan í hólnum. Mamma fjekk ákafa hóstahviðu, svo hún mátti eigi ganga, og ætlaði að hníga niður. Jeg reyndi að skýla henni með kápu- skauti mínu, og hálfbar hana inn í dyrnar, studdi hana svo inn göngin, hjálpaði henni upp 1 rúmið, hagræddi henni og breiddi ofan á hana.----------- Daginn eptir var jeg úti staddur; einmitt um sama leyti og jeg kom heim. Jörðin var alsnjóa, fannhvít, nema yfir í hlíðinni, þar sem viðurinn var mestur. Þar stóð svart og lauflaust limið upp úr. Vötnin voru alrennd og eyðulaus. Suður eptir loptinu rak

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.