Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Side 20

Eimreiðin - 01.05.1909, Side 20
xoo löndum. Ég var þar gestkomandi fyrir og hann kom þangað að heiman. Hann var hér um bil hversdagsklæddur, hafði kattar- skinnshúfu á höfði og gerði hún gott samræmi við alskeggjað niðurandlitið. Gjallandi — svo er hann löngum nefndur hér um slóðir ■— kastaði kveðju á okkur, sem fyrir vórum, heldur stytt- ingslegri. Parna sátu þó beztu vinir hans — Pétur Gauti og Auðna-Benedikt. — Hann fór nærri strax og kvaddi á sama hátt, — leit þó sérstaklega til mín og sagði: Kemur þú ekkert austur yfir ána? —■ Éar var bærinn hans. Og þetta var heimboðiö. Petta er Porgils gjallandi: stuttur í spuna og þur á manninn. Pegar ég kom heim til hans, var hann við fjárhirðing. Ég var lengi úti með honum og í fjárhúsum, áður en hann bauð mér inn. En vel sá hann fyrir þörfum mínum og kona hans; því að þegar ég vaknaði um morguninn eftir, var hann kominn í fjár- húsin sín, en skilið hafði hann við sögukorn eftir sig framan undir höfðalagi mínu. Porgils er afbragðs fjármaður og hestamaður. Eg hefi varla séð aðra eins nákvæmni í handtökum nokkurs manns, sem að fjárhirðing lúta, sem ég sá til hans. Dýrasögur hans eru ekki samdar af uppgerðartildri. Mér er sagt, að Porgils hafi litla dáleika á mönnunum. Pað kynni að vera misskilningur, sprottinn af þeirri rót, að hann er stuttur í spuna og ekki verulega málmjúkur. Ég gæti vel trúað því, að mennirnir hefðu lengra horn í síðu hans, heldur en hann hefir í síðu náunganna. En hitt kynni að vera, að hornið hans sé hvassara og viðkvæmara, af því að hann kann að ydda það. Ástæðan er augljós: Hann er ekki trúmaður á þann hátt, sem það hefir verið þýtt vanalegast. Hann sækir ekki kirkju, nema ef vera skyldi einu sinni á ári. Pó mun hann goldið hafa hoftollinn. Ég veit ekki um trúarskoðanir Porgils. Ég get ætlað, að sú hlýleika tilfinning, sem sumir menn eiga samvaxna trúar- kenningunum, hafi með honum runnið í annan farveg og orðið að samúð með dýrunum. En hvernig sem þessu er háttað, þá er það víst, að sumir menn hafa ýmugust á honum fyrir »trúleysi«. Á þennan hátt hefir það ef til vill orsakast, að skorist hefir í odda með honum og mannfélaginu. Maðurinn er skapstór og mun vera að eðlis- fari þrunginn af sjálfstæðishug. Konu á hann alla vega vel gefna og væna að álitum, en ef til vill ekki svo auðsveipa, sem vér

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.