Eimreiðin - 01.05.1909, Side 29
109
Hvítir menn í Bretaveldi:
Brezku eyjarnar................. 45,000,000
Kanada........................... 6,500,000
Ástralía......................... 4,200,000
Suður-Afríka..................... 1,250,000
New Zealand........................ 900,000
Gibraltar, Malta, Cyprus..... 450,000
Aðrar nýlendur..................... 500,000
58,800,000
Á síðustu 50 árum hefur Bretaveldi aukist sem hér segir:
. Stærð...................
íbúafjöldi...............
Hvítir menn..............
Tekjur alls ríkisins . . . .
Verzlun (innfl. og útfl.)
1860: 1909:
tæpar 6 miljónir □ mílna nál, 13 miljónir
200 miljónir
34 miljónir
114 miljónir f
503 miljónir f
nál. 415 —
rúml. 5 8^/2 —
280 milj. f
1526 milj. f
Flatarmál og fólksfjöldi Bretavaldis hefur tvöfaldast, tekjur
þess hafa aukist 2','a sinnum, og verzlun þess þrefaldast — á tæp-
um 50 árum.
I marzmánuði 1909 sagði lord Kitchener af sér forustu yfir
Indlandsher. Mintist hann þess, að aldrei hefði slíkt komið fyrir
í sögunni, að 75,270 hermenn útlendir héldu friði og lögum yfir
fimtung mannkynsins, auk þess að þeir ættu að verja landamæri
hins indverska keisaradæmis. Pað er eins og fáeinir varðmenn
ættu að vernda frið allrar Evrópu, og Rómaveldi, þegar það stóð
hæst, hefði álitið það fífldirfsku.
það er enginn hægðarleikur að verja þetta heljarveldi. Pó
vörðust Englendingar Napóleon mikla. Meðan þeir drotna yfir
öllum höfum heimsins, er þeim óhætt. En ekki þyrfti að banna
aðflutninga yfir hafið lengur en í nokkrar vikur til að koma þeim
á kné. Pví þeir fá fjóra fimtu af öllum sínum mat aðfluttan, og
mundu þá deyja hrönnum úr hallæri.
Nú er kominn til sögunnar nýr og voðalegur keppinautur.
Hann þykist hafa verið afskiftur, þegar heiminum var skift, því
England á alla beztu bitana. Síðan 1871 hafa allir vitað, að
Pýzkaland átti svo ágætan her, að engin þjóð á meginlandinu