Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Síða 43

Eimreiðin - 01.05.1909, Síða 43
123 ráðningu minna þig á, að láta ekki þetta koma fyrir aftur. Mundu mig um það! Hann skildi mig eftir svona á mig kominn á gólfinu og tók í handlegginn á mömmu. I’au gengu bæði út og hölluðu aftur hurðinni á eftir sér. Eg hangsaðist við að hneppa upp um mig meðan gráturinn var að smásljákka í mér. Loksins hætti ég að gráta, sársaukinn var farinn, en ég var allur stirður í andlitinu. Tárarenslið hafði storknað. Andlitið hafði lagt eins og tjörn af ís. Dálitla stund var ég að jafna mig. Eg hugsaði fátt — vissi ekkert, hvað ég átti að gera. Svo kom heiftin, hefndin. — Eg skal gera það aftur. fið skuluð ekki fara svona með mig fyrir ekkert. Eg fer út stax, út í fjóshaug og veð þar á skónum til miðnættis fyrir augunum á ykkur. Pið skuluð ekki ná í mig. Ef þið reynið það, þá fer ég á kaf í mykjuna, þar sem haugurinn er hæstur, og sekk upp fyrir höfuð. Reynið þið þá að ná í mig! Eg hugsaði mikið um þetta. Mér fanst það svo sem mátu- legt á þau, sem voru svona vond við mig. Pó fanst mér ekki árennilegt, þegar til kom, að eiga að sökkva í mykjuna upp fyrir höfuð. Svo hélt ég líka, að ég yrði þar kannske fastur, eins og Bjössi sagði mér um hrafninn einu-sinni, og þá næðu þau mér strax. — Nei, ég strýk héðan burt. Eg fer fram að Læk og bið hann Jón að taka mig. Ætli hann gerði það ekki, ef ég beiddi hann vel: Góði, bezti Jón, taktu mig. Eg get ekki verið heima lengur. Hann pabbi er eins og hann Leppalúði. — Nei, ég mundi aldrei koma mér til þess að biðja hann. Og þó að ég gæti það, er ekkert víst að hann gerði það. Hann mundi líklega senda mig heim aftur og halda að það væri skreytni alt saman, sem ég segði. — Nú veit ég, hvað ég geri. Eg fer upp í fjöll og strýk til útilegumanna. Svo segi ég þeim hvar pabbi á heima og hvar féð hans er. Gvendur á Bakka sagði mér, að það væru útilegu- menn hinumegin við Svartfjall í einhverjum stórum dal. Fyrst verð ég að finna hann og spyrja hann nákvæmlega um hvar það sé. — Nei, ekki er það nú gott. Lá segir hann kannske frá því heima. — Svo þori ég nú varla einn upp í fjöllin. — Jú, kannske

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.