Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Page 50

Eimreiðin - 01.05.1909, Page 50
130 Tvö kvæði. FOSS í FJÖTRUM. Stirðnað fannhaf boða og bylgjur breiðir yfir dali og fjöll; aðeins hæstu hrikaklettar höfuð teygja upp úr mjöll; niður svartir hamrar horfa hvast sem þursa andlit grett; slútir fram af frosnum brúnum fannahárið þykt og slétt. Út úr gili hljóð ég heyri, — hissa stöðva’ eg mína för —, einstök gráthljóð, andvörp, stunur eins og líða feigs um vör. Grætur þú nú, giljadrottinn, gleymast kátu ljóðin þér? Eða heyri’ eg eigin sálar andvörp gráta í hlustum^mér? Nei, þú grætur, grætur vorið, gullbrá sólar, dagsins yl, þegar dátt þinn djúpi rómur dundi og svall við hamraþil. Nú eru goldin ljóða launin: læðing berðu af snæ og ís, élin hlæja að harmi þínum, hvert þitt tár á brá þér frýs. Huggast vinur! Ei sá eini ertu, er komst í slíka raun; fleiri skáldum hlotnast hafa hér í veröld sömu laun. Tó þeir vildu sól og sumar syngja inn í hjarta og önd, heilla þjóða hjartakuldi hnepti þá í klakabönd.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.