Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Síða 55

Eimreiðin - 01.05.1909, Síða 55
135 lýðveldi, með hann fyrir forseta, 1905. Viðburðirnir 1905 bárust í tal við miðdegisverðinn, og sagði hann, að Norðmenn mundu hafa orðið að láta af hendi við Svía syðsta fylki Noregs, Smaa- lenene, ef þeir hefðu orðið lýðveldi og staðið einir uppi. Hann er ánægður með að sitja höfðingjasetur, líkt og Erlingur Skjálgs- son eða Dala-Guðbrandur, uppi í sveit, en Ieggja orð í belg, þegar honum þykir við þurfa í höfuðborginni. Hann fór hörðum orðum um Mikla norræna hraðskeytafélagið (Store Nordiske Tele- Klettur í Guðbrandsdal, sem líkist andlitinu á Björnson. grafselskab) fyrir hve vonda kosti þeir hefðu sett íslendingum og inti ýtarlega eftir því. Hann er hugljúfi vinnufólks síns. Til þess að gera stúlkun- um í eldhúsinu sem minst ómak, af því það var sunnudagur, stakk hann upp á því við borðið, að við skyldum borða alla réttina af sömu diskunum, ekki láta skifta um diska; en kona hans, Caroline Björnson, hafði þó sitt fram að nokkru. Hún er farin að eldast og missa heyrnina. Björnson sagði í gamni, að ef hann dæi úr sjósótt á Ameríkuferð — á móti ráðum læknis síns —, þá yrði hann grafinn í Atlanzhafinu. Gamla konan sagðist þá mundu fleygja sér í sjóinn á eftir kistunni, hún vildi ekki lifa hann.

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.