Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Page 72

Eimreiðin - 01.05.1909, Page 72
152 Segir þar fyrst frá landnámum og afstöðu hins íslenzka lýðveldis til Noregskonunga, hvers vegna lýðveldið leið undir lok og hvernig stjórnarhögum var háttað um 1260. í^ar næst er skýrt frá, hvernig landið gekk undir konung, frá Gamla sáttmála og hvernig hann beri að skilja og afstöðu landsins til Noregs eftir þann tíma og eftir að hinar nýju lögbækur Járnsíða og Jónsbók gengu í gildi. ]?etta er í sem styztu máli efni þessa þáttar, en langt mál um hvort um sig. Ber því ekki að neita, að bókin er rituð af miklum lærdómi og <»11 þau rit notuð að fornu og nýju, sem til greina geta komið. Framsetningin er og mjög stillileg og með fullkomnum vísindablæ og margt skýrt vel 0g rækilega, sem áður hefir verið nokkuð í þoku eða miður ljóst. En auðvitað leynir það sér ekki, að ritið er samið af dönskum manni og jafnan þann veg litið á ákvæði og atburði, sem bezt hagar kenningum Dana í stjórnmálabaráttu þeirra við íslendinga. En til þess að ræða slíkt eru engin tök í »hringsjá« vorri. Til þess þyrfti miklu meira rúm, en þar er hægt að láta í té, enda mun von á sérstakri bók um þetta efni altsaman frá hálfu hinnar íslenzku stjórnar innan skamms, sem fé hefir nú verið veitt til á fjárlögunum íslenzku. Er og engin vanþörf á, að málið sé nú og fram sett frá íslenzku sjónarmiði, því óefað mun bók dr. Berlíns reynast mjög skæð stjórnmála- kenningum Islendinga hjá þeim, sem hana lesa og ekki þekkja neitt annað. En svo er um flesta útlendinga. V. G. DEN NORSK-ISLANDSKE SKJALDEDIGTNING, udgiven af Kommissionen for det Arnamagnæanske Legat ved Finnur Jónsson. A. Tekst efter Haand- skrifterne. 187 bls. B. Rettet Tekst med Tolkning. 178 bls. Verk þetta á að ná yfir öll norsk og íslenzk skáldakvæði fram að 1400, þessi tvö hefti ná fram um aldamótin 1000. Verkinu er skift í tvær samhliða deildir, A og B. Er í A prentað bezta handritið af hverju kvæði stafrétt og orða- munur tilfærður úr öllum öðrum handritum. í B eru kvæðin prentuð eins og þau hafa verið lagfærð af málfræðingum síðari tíma, en neðanmáls sett orðaröð í óbundnu máli og dönsk þýðing. fetta fyrirkomulag mælir með sér sjálft, og hvergi er þess brýnni þörf en á útgáfu af skáldakvæðunum, þar sem kvæðin oft eru lítt eða ekki skiljanleg í hand- ritum, og vísindamenn hafa neyðst til að þreifa sig áfram til rétts skilnings með til- gátum. Par er því nauðsynlegt fyrir hvern þann, sem sjálfstætt vil lesa kvæðin, að hafa bæði hinn leiðrétta texta og texta handritanna fyrir sér. Óhætt er og að fullyrða að engum núlifandi manna er betur treystandi til þess að leysa verk þetta vel af hendi en prófessor Finni Jónssyni. Hann er allra manna vanastur útgáfu fornra íslenzkra handrita og gjörfróður í öllu því, er að fornum kveðskap lýtur. Utgáfan er falleg og fremur ódýr, þessi tvö fyrstu hefti bæði 5 krónur. Eg vil mæla hið bezta með henni við alla þá, er forníslenzkum kveðskap unna. 5. N. ANDREAS HEUSLER: DIE GELEHRTE URGESCHICHTE IM Af.T- IS L.ÁNDISCHEN SCHRÍFTTUM. Á miðöldunum var það alltítt, að lærðir menn í norður- og vesturhluta álf- unnar reyndu að koma sögnum þjóðflokka sinna í samhengi við sögu hinna eldri menningarþjóða í suður- og austurlöndum. Röktu þeir þá ættir þjóðsagnakappa sinna og guða (sem þeir voru þá hættir að trúa á) til Grikkja og Trójumanna, og

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.