Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1909, Blaðsíða 73

Eimreiðin - 01.05.1909, Blaðsíða 73
153 komust jafnvel alla leið aftur í Biblíu, og var þetta auðvitað að mestu staðlaus heilaspuni. Forfeður vorir spreyttu sig á þessu, ekki síður en aðrir, svo sem sjá má á ýmsum fornritum, alt frá dögum Ara prests hins fróða, og um þær tilraunir er bók þessi ritin. ]?ótt höf. tíni hér margt til af lærdómi sínum, býst ég varla við að margir láti sig miklu skifta efni bókarinnar, aðrir en sérfræðingar, einkum vegna þess, að hér er um að ræða einn hinn ómerkasta hluta fornbókmenta vorra. Meðal þess, er höf. heldur fram, skal þess getið hér sérstaklega, að hann þykist þess fullviss, að Snorri okkar Sturluson eigi lítið eða ekkert í formálanum framan við Gylfaginningu, heldur haíi einhver seinni tíðar glópaldi getið þenna óburð í blóra við hann. Færir hann að því ýmsar líkur og allsterkar, að því er virðist, og þarf eigi að harma það Snorra vegna. A. B. SKOTLANDS RÍMUR, edited by W. A. Craigie. Oxford 1908. Rímur þessar, sem eru 6 alls, eru ortar af séra Einari Guðmundssyni á Stað á Reykjanesi á fyrri hluta 17. aldar, og er efni þeirra samsæri gegn Jakobi VI. Skotakonungi. Er enginn snild á þeim frá höfundarins hendi, því þær eru fremur leiðinlegar og ekkert vel kveðnar. í*ær eiga því tæplega skilið að birtast í annarri eins afbragðs útgáfu, eins og þeim heíir hlotnast hjá dr. Craigie. Því frá henni er snildarlega gengið í alla staði, hvort sem litið er á meðferð sjálfs rímnatextans, formála og inngang, eða skýringar á kenningum og orðasafnið aftan við. Framan við er ljósprentuð ein blaðsíða af handritinu í Arnasafni Magnússonar, og aftan við er prentuð gömul dönsk frásögn um samsærið, sú hin sama, sem höfundur rímnanna hefir farið eftir. A undan rímnatextanum er og prentað á íslenzku æfiágrip séra Einars eftir Sighvat Grímsson Borgfirðing, og hefir hann líklega ekki órað fyrir því, er hann var að semja prestaæfir sínar, að það ætti fyrir þeim eða kafla úr þeim að liggja, að koma á prent hjá hinni frægu Clarendon Press í Oxford. En nú er þó svo komið fyrir töfrabrögð dr. Craigies. Stórfurða er að sjá, hve útgefandinn er vel að sér í hinum mismunandi rímna- háttum og glöggskygn á einkenni þeirra, og þá ekki síður hinar ágætu skýringar hans á fágætum og torskildum orðum, sem hvergi finnast í orðabókum. V. G. BUERGEL GOODWIN: DET MODERNA ISLÁNDSKA UTTALET. Sérpr. úr »Svenska landsmál ock svenskt folkliv« 1908 1. h. Stockholm. Ritgerð þessi er leiðarvísir í framburði á nýíslenzku og ætluð til þess að nota hana við kenslu í íslenzku, enda upphaflega samin til notkunar við æfingar í ís- lenzkri tungu, sem höf. hefir haldið við háskólann í Uppsölum. Eru þar sýnishorn bæði með almennri stafsetningu og með hljóðritun og auk þess töflur og skýringar yfir hljóðgildi íslenzkra stafa og hljóðsambanda. Virðist þar mjög samvizkusamlega frá öllu gengið og með fullkominni vísindanákvæmni; en með því oss brestur nægi- lega þekkingu á gildi þeirra hljóðtákna, er höf. notar, sumra hverra, treystum vér oss ekki til að kveða upp neinn dóm um það, hvort alt sé rétt í ritgerðinni, þó oss virðist flest benda á að svo sé. V. G. J. C. POESTION: FRIEDRICH BARON DE LA MOTTE-FOUQUÉ UND ISLAND. Sérpr. úr »Die Kultur« 1909, 2. h. Wien. Ritgerð þessi er um höfund æfintýrasögunnar »Úndínu«, þýzka skáldið þjóð- kunna: Motte-Fouqué, virðing hans fyrir íslandi og íslenzkum bókmentum og áhrit
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.