Eimreiðin - 01.05.1909, Side 76
156
QUER DURCH ISLAND (Um ísland þvert) heitir kver, sem þýzkur jarð.
fræðingur Maurice von Komorowicz hefur nýlega gefið út. Höfundur ferðaðist
um landið sumarið 1907. Var hann með konu sína, þjón þýzkan, 3 fylgdarmenn
íslenzka og 27 hesta. Vita allir, sem þekkja til ferðalaga á íslandi, hve ilt það er
að ferðast þar við slíkan flokk manna og hesta, enda ber höfundur íslendingum
illa söguna. Fer hann mörgum orðum um óþrifnað þeirra, ágirnd, seinlæti og
makræði. Segir meðal annars að þeim finnist það hreinasta erfiði að liggja á bak-
inu! Eg vildi gjarnan sjá hinn heiðraða höfund starfa að gegningum í stórhríðum
eða uppskipun í brimgangi, svo að honum auðnaðist að dæma meira af eigin reynd
um það, hve tekið er út með sitjandi sælunni að lifa á íslandi.
Fátt finst honum um fegurð landsins og verður það jafnan undir í samanburði
við önnur lönd. Vill. höfundur auðsjáanlega sýna, að hann hafi víða ratað og kalii
ekki alt ömmu sína. fó skýzt það upp hjá honum á milli, að landið hefur haft
mikil áhrif á hann, þótt hann auðvitað hafi ekki skilið það einkennilegasta í nátt-
úru þess.
í lok bókarinnar kemur höfundur með þá fjarstæðu, að suðurströndin hafi
verið undir nýföllnum snjó, þegar hann sigldi frá íslandi í septemberbyrjun! Það
má heita að gera það ekki endaslept.
I bókinni eru margar myndir, þar á meðal nokkrar hræðilegar litmyndir eftir
frú von Komorowicz. S. N.
Úr skopblöðum Dana.
Eimreiðin flutti í fyrra (XIV, 75—6) tvær myndir eftir skopblöð-
um Dana, aðra um viðtökur alþingismanna í Khöfn 1906, og hina
um viðtökur konungs og ríkisþingsmanna í Rvík 1907. Með því að
svo lítið er um þessháttar myndir á íslandi, álítum vér rétt að láta
Eimr. í þetta sinn á ný flytja þrjár skopmyndir, er snerta íslenzka við-
burði, sumpart til gamans og aðhláturs, og sumpart til þess, að sýna,
hvernig Danir líta á Island og sumt af því, sem þar gerist.
Fyrsta myndin er tekin eftir skopblaðinu »KLODS-HANS« 31.
maí 1908, rétt eftir að störfum millilandanefndarinnar var lokið. Sýnir
hún þáverandi ráðherra Hannes Hafstein á dreka miklum og þá-
verandi forsætisráðherra Dana J. C. Christensen í smábát á eftir, bundn-
um í dráttartaug við drekann. Mynd þessari fylgir og þýðing af texta
þeim, er henni fylgdi í »Klods-Hans«, og sýnir hann enn skýrar, hverj-
um augum margir Danir litu á störf millilandanefndarinnar.
Onnur myndin sýnir leikkonuna dönsku Odu Nie 1 sen, þar
sem hún er að syngja fyrir Reykjavíkurbúum haustið 1908, og er þá-
verandi ráðherra Hannes Hafstein látin spila þar undir á harmóniku.