Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1915, Page 14

Eimreiðin - 01.01.1915, Page 14
M upphæö eins og ég tók, heldur margfalt meira, og æru mína og mannorð í ofanálag? Hver gerir þaö? — Það gerir pjób- félagii. í’jóðfélagið skipar: Sá, sem tekur líf annars manns, skal missa líf sitt. Nú tek ég líf annars manns, — en hver tekur þá mitt líf? Aftur: þjóíifélagib. Manni verður að freistast til að halda, að þjóðfélagið brjóti hér sín eigin lög. Pví verði einhverjum siðferðislega bækluðum einstaklingi á, að fremja einhvern glæp, þá er samskonar glæpur framinn á honum — eða ennþá verri. Líkir þá þjóðfélagið eftir honum? Eru þá siðferðislega vanaðir einstaklingar fyrirmynd þess í þessum efnum ? Mönnum gæti virzt, að svo væri. Nú kynni einhver að segja: Veit ég vel, að hegningarað- ferðin er óheppileg og óréttlát, en hvað eigum við þá að gera, til að bæta úr því? Því er fljótsvarað: burt með líflátsdóminn; gerum gagngerðar umbætur á betrunarhússvistinni og afleiðingum hennar. Við vitum vel, að t. d. morð er altaf afskaplegur glæpur, og stundum stórhryllilegur; en við vitum líka jafnvel, að ekkert hjálpar, þó morðinginn sé líflátinn, eins og gert er ráð fyrir í lögunum. Pess vegna eiga þau ákvæði ekki að vera til. Við vitum líka vel, að betrunarhússvistin, eins og hún er nú, hjálp- ar' ekki heldur. Þess vegna verður að endurbæta hana frá rótum. Og ég get ekki séð, að nokkurt réttlæti geti verið í því, að hneppa menn í fangelsi, sé þar ekki gert alt, sem unt er, til að hjálpa þeim. Ef einhver segði nú sem svo, að þeir væru nú svo fáir, sem kæmust undir vönd hegningarlaganna, hér hjá okkur, að ekki tæki því, að gera stórbreytingar á fangelsisvistinni, væri því að svara, að þó ekki væri nema einn maður á ári, sem yrði fyrir núverandi hegningaraðferð, væri breytingin samt jafn-sjálfsögð; enda aldrei hægt að segja fyrirfram, hve margir kunna að brjóta lög, sem hegningu varða. Og einmitt vegna þess, að fátt er um glæpi hér, eru miklu meiri líkur til, að unt væri að láta þá hverfa að mestu leyti, væri vel á haldið. Én aðrar þjóðir stórbreyta ekki fangelsum sínum, segði ein-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.