Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1915, Side 32

Eimreiðin - 01.01.1915, Side 32
32 dullítið efins um sumt í þessari ritgerð; á það vil ég minnast. fað er efalaust rétt, að hún Hallgerður á Hlíðarenda var kölluð langbrók af því, að hún bjó sig í langa brók, að karla sið. En aðrir kölluðu hana snúinbrók, og höf. telur liklegast, að þar sé átt við úthverýa brók. Mér finst miklu líklegra, að átt sé við *öfuga<, sskakka* brók (o: karlmannsbrók, sem er skökk flík á konu), því að sú merking er líka til í orðinu snúinn (sbr. »snúa á verra veg«, »snúa vísu«, »snúa sér í hundslíki*, »snúinn og af- undinn* — alt lifandi íslenzka og gömul þó). Höf. talar um ólokabar brækur. Pað orðalag þekki ég ekki. Brækur eru eitt af tvennu: lokábar eða opnar; það eru réttu heit- in. Og þar við er þessu að bæta: íslenzkar konur gengu al- ment í opnum brókum fram undir lok 19. aldar, og þess eru dæmi, ekki allfá, enn í dag. Pað voru (í sveitum) stuttbrækur og úr vaðmáli og hétu nærskjól. fetta hefir breyzt mjög snögg- lega, á síðasta mannsaldri, svo að nú eru kvenbrækur hér yfir- leitt lokaðar, í sama sniði og í öðrum löndum, og oft úr útlend- lendum vefnaði (lérefti o. s. frv.), eða þá íslenzku prjónlesi, sem óðum færist í tízku í stað vaðmálsins. Það var víst líka alltítt hér áður, að konur gengu nærskjólslausar, í pilsflíkunum einum; en nú er það mjög fátítt. — Höf. nefnir ekki brækur eða hosur barna í fornöld. En það vitum við báðir, að til skamms tíma gengu piltstaular hér í opnum brókum öll sín fyrstu spor — á öðru árinu og þriðja og stundum lengur, ef þeim var ekki trúað til að »bjarga brókum sínum«. Pessi siður er ekki útdauður, en orðinn fátíður. Pess er líka skamt að minnast, að börn fengu engar brækur, voru höfð berlæruð fyrstu missirin 2 eða 3, sveinarnir líka, meðan þeir gengu í »klukku«. Sá siður er víst ævagamall, því að svo segir í Sverrissögu, að Svíar tóku fil konungs Jón Sörkvisson, »var hann þá vetrgamall; höfðu þá Svíar konung bróklausan* (Fornmannas. VIII, 448). — Pessi snöggu brókaskifti kvenna og barna hér á landi á síðasta manns- aldri eru því að kenna, langmest, að læknar hafa dæmt opnar brækur óhollar og yfirsetukonurnar flutt þann boðskap út um all- ar bygðir. Pær hafa drýgt margt erfiðið þjóðinni til gagns, meira en menn vita. í alþýðumáli hverrar þjóðar lifa ótal menjar liðinna tíma ljós- um logum, en því hefir lítið verið sint alt til þessa, sízt hér á

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.