Eimreiðin - 01.01.1915, Side 38
3«
allar samdar árið 1703, flestar á vorhreppaskilum, en ekki árin
1703—12, eins og jarðabókin sjálf, og eins og sagt er í »Skýrsl-
um um landshagi á íslandi«. Pessar skýrslur hafa aldrei verið
notfærðar til fulls, en liggja enn þá ónotaðar; en úr þeim má
vinna afarmargt og mikið, því þær eru feikna nákvæmar, að því
er virðist. Skýra þær nákvæmlega frá búfjáreign bóndans, og
aldri allra skepna hans, frá eign húsmanna og vinnumanna og
frá leigufé og innstæðukúgildum hverrar jarðar.1) Pað hlýtur því
að vera mjög mikils vert fyrir alla, er fást við búnaðarsögu
landsins, að það verði unnið úr þessum skýrslum, og má vænta,
að svo verði, því duglegir og ötulir menn stjórna hagstofunni, og
Landskjalasafnið lætur afrita skýrslur þessar og manntalið frá
1703-
Árið 1703 var Reykjavík eiginlega ekki orðinn neinn kaup-
staður. Að vísu var þar verzlun í »Hólminum«, en þar voru að
eins þrír menn við verzlunina. Pað var kaupstaðurinn. Pegar
gætt er að því, hvað marga íbúa Reykjavík hafði árið 1703, þá
verður vitanlega að telja alla þá, er bjuggu, eða áttu heima, á
jörðum þeim, er nú eru taldar í Reykjavík, eða eru orðnar að
kaupstaðnum Reykjavík; en þær jarðir eru Sel, Effersey, Reykja-
vík, Hlíðarhús, Arnarhóll, Rauðará, Laugarnes og Kleppur, með
þeim hjáleigum, er hverri jörð um sig fylgdu. Og við það verð-
ur að miða allar skýrslur um Reykjavík á þeim tíma. Bústaði,
sem Reykjavík á og notar að miklu leyti, eða Skildinganes, sem
er inni í miðju bæjarlandinu, tel ég ekki; því báðar þær jarðir
eru enn í Seltjarnarneshrepp. Árið 1703 er talin góð jörð við
Skerjafjörðinn, sem nefnd er Litla-Skildinganes, en á sjálfu
Grímsstaðaholtinu virðist enginn bær hafa staðið.
Eftir manntalinu 1703 verður fólksfjöldi Reykjavíkur þá á
þessa leið (en manntalið hefir í Reykjavík farið fram 15. apríl
1703):
x) í »Skýrslum um landshagi á íslandi« Ií, 31—75 er skýrsla um fjártal
þetta, en eins Og sést á bls. 58, eru tölurnar nokkuð á reiki, og stafar það vitan-
lega af því, að frumskýrslurnar hafa ekki verið rannsakaðar nákvæmlega.