Eimreiðin - 01.01.1915, Side 66
66
sem alt lá á tvístringi undir oltnum og brotnum bekkjunum, og
gekk til dyranna.
Margir af áhorfendunum fóru út á eftir honum og fylgdu
honum eftir álengdar.
— Sem nærri má geta, var lengi að komast jafnvægi á fund-
inn aftur eftir annað eins rask. Menn skvöldruðu hver í kapp við
annan um það, sem gerst hafði, og þó einkum um séra Kela.
Prestarnir sjálfir líka.
Setningarnar, sem heyrðust, komu sín úr hverri áttinni og
mættust alstaðar í húsinu. — »Hann er vox populi,« sagði gleið-
mynti magisterinn. — »Hann er vitlaus, karl-greyið,« gall í ein-
hverjum öðrum.— »Pað var hvert orð satt, sem hann sagði.« —
»Hann er dagaður uppi á vegi kirkju-framsóknarinnar og orðinn
að nátttrölli — eins og svo margir fleiri.« — »Hann er einn af
þeim sára-fáu nú á dögum, sem hefir kjark og hreinskilni til að
segja það eitt, sem honum býr í brjósti, og segja það hispurs-
lauust. Hann hefir heldur ekkert að missa, þó að einhver reiðist
við hann.« — »Hann fór með öfgar og fjarstæður, sem ekkert hóf
var í.« — »Já, vitaskuld. Sóttkveikjurnar eru stækkaðar og litaðar,
til að sýna þær.— Öfgarnar eru oftast nær sannleikur undir stækkun-
argleri.* — »Mér er nú sama, hvort hann sagði satt, eða ekki satt, og
hvort hann er vitlaus, eða ekki vitlaus; það er að minsta kosti ó-
svikinn andskotans skrokkur á honum enn þá« — o. s.frv., o.s. frv.
Á meðan gekk séra Keli ofan eftir götunni, smábrosandi og
talandi við sjálfan sig, eins og hann væri að rifja upp fyrir sér
fundarræður sínar eða halda þeim áfram og endurbæta þær.
Hann skeytti þeim ekkert, sem voru í humátt á eftir honum.
Hann stefndi ofan á bryggjuna, til þess að fá sér far út í skipið,
þar sem hálmbælið beið hans á undirþiljunum.
En inni í fundarhúsinu hamaðist prófasturinn og hringdi bjöllu
sinni, gljáandi í framan af svitanum, sem út um hann hafði sprott-
ið, þegar angistin var afstaðin. Hann var að reyna að hasta á þetta
ókyrra haf, sefa ölduganginn í kjölfari séra Kela, svo hægt væri
að halda fundinum áfram.
»það var um launakjör presta, sem við vorum að tala. Svo
hljóðandi tillaga er komin fram: Fundurinn skorar á Alþingi, að
gera alvarlegar . . .«