Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1915, Page 69

Eimreiðin - 01.01.1915, Page 69
6g og rnargt fleira. Um erindrekamálið rita þeir báðir, hann og Pétur Gauti, en eftir aðra sést þar harla lítið nema skýrslur, og þó sumt af því tæginu eftir ritstjórann líka. Manni verður að spyrja: hvemig skyldi fara um ritið, ef hans misti við ? V. G. STURLUNGA SAGA. III. Búið hefir til prentunar Benedikt Sveinsson. Rvík 1913. þetta 3. bindi af Sturlungu byrjar með sögu Þórðar kakala og endar á frásögninni um dráp Odds Þórarinssonar í Geldingaholti 1255. Segir þar frá mörgum stórvirkjum, t. d. Flóabargaga og Flugumýrar- brennu o. s. frv.; og meira mundi kerlingunni hafa þótt varið í þess- ar frásagnir en guðspjöllin, því ekki þarf yfir því að kvarta, að eng- inn sé í þeim bardaginn. V. G. ALMANAK ÓLAFS ÞORGEIRSSONAR 1914. XX. ár. VVinni- peg 1913. Pað er nú orðið tvítugt þetta Almanak, og í tilefni af því hefir það nú verið stækkað að miklum mun, enda verð þess hækkað að sama skapi. Það hefir jafnan verið vel úr garði gert og haft margt fróðlegt að færa, og svo er enn. Eru þar tvær þýddar sögur, þrír þættir úr landnámssögu íslendinga í Vesturheimi, æfisögur nokkurra merkra manna með myndum, helztu viðburðir og mannalát meðal Vestur-íslendinga o. s. frv. En mest kveður þar að ritgerð um Woodrow Wilson Bandaríkjaforseta. eftir séra Friðrik Bergmann, þar sem rakinn er stuttlega æfiferill hans og skýrt frá kosningabaráttu hans fyrir forsetatigninni og stjórnmálaskoðunum. Eftir að kosningun- um var lokið, gaf einn af vinum Wilsons út bók, þar sem þrýst er saman útdráttum úr ræðum hans í kosningaleiðangrinum, sem hraðrit- arar höfðu ritað niður, jafnóðum og þær voru haldnar. Tilfærir séra Friðrik allmargar glepsur úr þeirri bók, enda eru þær sannarlega þess virði og geta átt víðar við en í Ameríku. Skulum vér rétt til smekks tilfæra einstöku setningar sem sýnishorn: j Framfarir! Hefir þér nokkru sinni til hugar komið, að þetta væri nýtt orð? í mörg þúsund ár hafa menn hugsað sér alt hið glæsilegasta að baki sér, — frægðina, framann og glæsimenskuna. »Á þeim tíma voru risar.« Nú er þetta breytt, — gjörbreytt. Nú eigum við stöðugt hið glæsilegasta, dýrlegasta fram undan. Hið um- liðna og hið nálæga er ekkert í samanburði við það. Framför — framþróun — þetta eru nútlma orð. Nú er hugmyndin sú, að hverfa frá hinu liðna, til að seilast eftir hinu nýja og ókomna.« — — — sÞví miður hefir sú óhæfa smeygt sér inn, að fdeinir menn fá vald yfir stjórninni, til að afia sér allskonar hlunninda. . . . Hvers- konar harðstjórn eigum vér nú í höggi við? Félög, sem náð hafa haldi á löggjöf og dómsvaldi, til að auka eigin hagsmuni, en hnekkja hagsæld fólksins. Lögunum er beitt og gangi mála vorra stýrt auðfé- lögum í vil. Stjórnmálavélamar ganga í bandalag við tjárbrögðin. Á þann hátt verður stjómin ekki lýðstjóm, heldur fédólgastjórn.« . . .

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.