Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 4

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 4
8o hálfum klukkutíma, og stundum jafnvel á 20 mínútna fresti. Setj- um svo, að deiling verði á hálftíma fresti, þá hefir gerill, sem byrjar að deilast um miðjan morgun, getið af sér rúmlega i6'ji miljón (16.777,216) um miðaftan. En eftir sólarhring (24 klukku- tíma) er gerlamergðin orðin liðlega 281 biljón (281,474,976,710,656). Ef allir þessir gerlar lægju í röð, hver við endann á öðrum, mundi lestin ná mörgum sinnum kringum jörðina. Setjum svo, að lengd gerilsins sé 4 þá komast 250 gerlar á einn millímetra, 2500 á einn sentímetra og 250,000 á metrann. Nú getur hver, sem vill, haldið áfram og reiknað, hve löng lestin verður. Deiling gerlanna getur verið svona ör, þegar kjör gerlanna eru sem bezt við þeirra hæfi. Én margt er gerla bölið, ekki síður en mannanna, og tekur náttúran oft ómildum höndum á þessum smælingjum. Kjörin eru löngum svo óhagstæð, að deiling getur ekki átt sér stað; og gerlarnir mega telja sig sæla, ef þeir aðeins geta hjarað. En væru kjörin ávalt sem bezt við hæfi gerlanna, yrði varla þver-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.