Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 10

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 10
86 þeir voru aldir á lífrænum kolefnasamböndum (sykri). Pá fundust og rótargerlarnir, sem fyrir löngu eru orðnir alkunnir fyrir köfn- unarefnisvinslu úr loftinu. Á rótum ertublómanna (og skyldra ætta) eru smáhnúðar. Hnúðar þessir eru t. a. m. algengir á smára á íslandi. í hnúðunum eru ósköpin öll af rótargerlum. Gerillinn er í moldinni, líklega í dvala. Pegar ertublómum er sáð í moldina, og ræturnar fara að vaxa, kemst gerillinn inn í þær. Líklegast er, að gerillinn festist í sárum eða rifum, sem auðveldlega geta komið á ungar rætur í moldinni. Gerillinn brýzt inn í frumurnar í rótinni og fyllir þær algjörlega. Frumurnar verða fyrir nokkrum hnekki, en halda samt áfram að stækka. í upphafi tekur ger- illinn fæðu úr frumum ertu- blómanna. Par fær hann bæði sykur og asparagín. í fyrst- unni fær hann köfnunarefni úr asparagíninu, en vonum bráð- ar fer hann að vinna köfnun- arefni úr loftinu. Meðan ertu- blómið er ungt og óharðnað, kemur í það kyrkingur af völdum gerlanna. En þegar leiðistrengir ertublómsins eru fullvaxnir, og súr næring flyzt um alla jurtina, þá kemur kyrkingur í gerlana, og þeir deyja að lokum. En ertublómið fær þá borgun fyrir sfn fyrri útgjöld, 'því það neytir þess köfnunarefnis, sem gerlarnir hafa safnað, jog fær mikinn og góðan vöxt. Pegar upp er skorið, verður mikið eftir af rótum í moldinni. Pær molna þar sundur, og á þann hátt fær moldin nokkuð af því köfnunarefni, sem í þeim var. ?að hefir reynst vel, að hvíla akra með því, að sá í þá ertublómum, enda er það skiljanlegt, því að jarðvegurinn er miklu ríkari af köfnunarefni, þegar ertublómin skila af sér. 12. I’verskorinn gerlahnúður á Lathyrus silvestris f gerlastrengir; bact, gerlar; k, frumukjarni; amt mjölviskorn; mi, korn í fryminu; v, safahol.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.