Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 11

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 11
87 Menn hafa sáö rótargerlum, þar sem þá vantaði. Hafa menn gert það með því, að flytja þangað mold, sem ertublóm höfðu vaxið í. Rótargerillinn hefir einnig verið hreinræktaður og geng- ið kaupum og sölum (.Nitragin; »bólusetning jarðvegsins«). Útbreiðsla gerlanna. Oft lítur svo út, sem gerlarnir séu alstaðar nálægir, og getur vel verið, að varla finnist nokkur blettur á yfirborði jarðar, er sé alveg laus við gerla. En sum- staðar er gerlamergðin afarmikil, og á öðrum stöðum sárfáir gerlar. Pó skal þess getið, að gerlagróður jarðarinnar hefir ekki enn verið rann- sakaður nægilega víða á hnettinum. Svo má að orði komast, að gerlagróður sé aðeins kunnur á takmörkuð- um svæðum, t. a. m. víðs- vegar í Evrópu og Ameríku. Útbreiðsla gerlanna á hnettin- um verður aðeins rakin í stór- um dráttum. í hitabeltinu er afarmikið af gerlum, en lítt eru þeir þar rannsakaðir enn. Uppi á háfjöllum og í heims- skautalöndunum er lítið um gerla. Og þótt undarlegt virðist, er gerlagróður háfjalla og heimsskautalanda næstum því kunnari, en gerlagróður hita- beltisins. Sem dæmi upp á heimsskautalönd má nefna Spitzbergen. þar var afarlítill gerlagróður. I loftinu voru engir gerlar, og að líkindum er það því að þakka, að menn verða ekki kvefaðir í heimsskautaferðum. 1 snjó, ís og vatni fundust nokkrir gerlar á Spitzbergen, og var einna mest í snjónum. í sjónum voru fáir gerlar á yfirborðinu, en þeim fjölgaði nokkuð, eftir því sem dýpra kom. Á háfjöllum er gerlagróðurinn nokkuð svipaður eins og í

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.