Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 26

Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 26
102 um mittið, en sló sér út að neðan, þegar ofan eftir dró. Hún var ýmist úr ofursmágerðu vaðmáli eða klæði, lögð með flosborða, 4 þuml. breiðum. Var flos það ofið með rósum, byrjað í kringum háls- inn, og haldið áfram í skaut niður. Krækt var með einum króki í hálsinn. I þessum hempum sátu konur í kirkjunni, nema þegar til altaris var gengið, þá lögðu þær hempuna af sér, meðan á berg- ingu stóð. Þannig var nú gamli skautbúningurinn, en hinum nýja þarf ekki að lýsa, því hann þekkist í flestum löndum af myndum. Margar góð- ar myndir af gamla skautbúningnum má og sjá í Eimreiðinni X, 1—32, í ritgerð eftir höfuðsmann Daniel Bruun, sem heitir: »íslenzkir kvenn- búningar* og er með 34 myndum. í fyrsta skiftið, er ég var við guðsþjónustu í dómkirkjunni í Rvík, langaði mig til að sjá Fornmenjasafnið, en hafði ekki einurð á að biðja um það. Fór ég þá til Guðríðar minnar, bróðurdóttur Bjarna amtmanns Thorsteinssonar, og bað hana að koma með mér í kirkju, sem hún og gerði. Eftir messu kom hún mér á framfæri, þvf ég var þá ekki uppburðarmikil, aðeins 15 ára. Var þá Sigurður málari Guð- mundsson vörður þessa litla safns og stofnandi. Safnið var þá uppi á kirkjulofti, og varð ég að ganga upp marga stiga, og var orðin þreytt, þegar upp var komið. Þá var nú Sigurður gamli dálítið errinn, og var eitthvað að tauta um stjórnina, hve húsrúmið væri lítið. Þó varð ég hrifin af því, sem ég sá, en undanfelli nú samt, að telja það upp. Gaf ég þá safninu borðasprota af hempu ömmu minnar, og Guðríður mín gaf bók, sem skrifuð var á kálfskinn. Hækkaði þá brúnin á Sig- urði, ekki síður en á Agli, er hann tók við hringnum af Aðalsteini, og upp frá því vorum við mestu mátar. — Aumingja karlinn, ég held hann hafi fengið steina fyrir brauð um dagana, enda var lundin stirð, sem von var; því oft var vegur hans þymum stráður, eins og Steingrímur kemst að orði í erfiljóðunum eftir hann. HJÁTRÚ OG HINDURVITNI, FÁRÁÐLINGAR O. FL. Systurnar á Setbergi fengu að koma til mín einu sinni á vetri, og vera í viku, eins og ég þar, á aldrinum 8 —12 ára. Þá voru þær að segja mér ýmsar sögur um og eftir Gunnu, sem kölluð var sgó«, og Gísla bróður hennar, sem kallaður var «gosi«, af því hann gat ekki nefnt nafn sitt rétt. Gunna gó og Gísli gosi voru hjú á Set- bergi. Sagðist Gunna gó sjá og heyra dauða fólkið í kirkjugarðinum, og að það kæmi inri í bæ og legðist ofan á þau systkinin á nótt- unni, klipi þau og kreisti. Þessu trúðum við sem nýju neti, enda þótt Gunna gó segði frá, sem við vissum, að var líkari fífli en manni. Við vorum líka svo myrkfælnar, að við þorðum ekki fet, nema að hafa Ijós. Og altaf versnaði ég, þegar ég kom að Setbergi. Var föður mínum illa við þetta, en mamma umbar það. Einu sinni tók faðir minn það fyrir, að senda mig um vökuna fram í eldhús með eitthvað. Stofa var á milli eldhúss og dagstofu, og myrkur í henni. Fyrst horfði ég á hann steinhissa, og fóru þá
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.