Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 28

Eimreiðin - 01.05.1915, Blaðsíða 28
104 f'arna undir Kirkjufelli voru og önnur hjón, Guðmundur á Búðum og f’órunn kona hans. Var hún oftast í karlmannsfötum. Sú þóttist nú kunna dönsku, gömlu dönskuna. En enginn skildi, hvorki Danir né Islendingar. Hún var æði montin, skar sjálf hestana og lét karl- inn flá. Þriðji bóndinn hét Asmundur, auknefndur »ærulangur«. Alt át fólk þetta hrossakjöt, er þótti ósvinna í þá daga. Man ég, að þeg- ar fólk þetta var að koma til okkar, þá sögðu vinnukonurnar við okk- ur: sKomið þið ekki nálægt, því þetta eru hrossakjötsætur.c Má af því sjá, hvílík svívirðing það þótti. Raunar var einhver vondur þefur af því, þræzlulykt, því það hefur ekki kunnað að fara með kjötið, eins og nú er gert, og ekki kunnað að matbúa það rétt. f'essi Ásmundur átti son, er einnig hét Asmundur, auknefndur »tólfti«, af því hann gat ekki nefnt 12. Nærri hver maður var þá auknefndur. Dóttur átti hann og, er Snjólaug hét. Ég man þegar móðir þeirra dó, og var ég þá 7 vetra Kistuna utan um hana smíðaði Sigurður smiður, maður ljósmóður okkar, í þinghússtofunni. Vakti vinnumaðurinn eina nótt við það verk, að reka svip kerlingar út. Trúin var sú, að hinn dauði stæði hjá smiðnum, þangað til kist- an væri búin. Svipur kerlingar kom upp á loft, og klóraði í hurð- ina, þar sem Sigurður svaf, unz Guðlaugur (svo hét vinnumaðurinn) rak hana ofan og út. Og hann horfði á hana ljóta og grettna. Eitt sinn lá Ásmundur ærulangur veikur, og var Snjólaug dóttir hans og Ásmundur sonur hans að búa um karl að vancfa. En hann dó í höndunum á þeim. f’au trúa því ekki, og segir þá sonurinn: 3Vertu nú ekki að þessu »hrái« (þrái), »fair< (faðir) minn.« Málfær- ið var aumt, en þó segist hann nú halda, að hann sé dauður. Loks- ins klykkir hann því út og segir: »það er sem ég segi, hann er dauður, og steindauður.« Hoppar hann þá upp af gleði, fer til hús- freyju, er bjó í öðrum enda þæjarins og hét Sigríður, og biður hana »að gera aumingja karlinn til«, þegar henni sé hægt urn. Þá segir systirin Snjálaug: »Gaztu ekki. svínið þitt, sagt: hann er sálaður. Nú kemst hann ekki inn í Himnaríki.« Sú var trúin. »Jæja,« segir Ásmundur, »hann verður þá einhverstaðar.« »Bróir minn sér fyrir mér,« sagði Snjálaug seinna, »je á a fara í Grundarfjörð til hans Daníelsens.« Það varð og. En hún var of gömul til þess, að lagfært yrði málfærið. Þó tók hún mikilli breyt- ingu hjá okkur. En hún varð llka þóttafull af öllu saman og segir: »Systkinin hérna eru sona heldur gáfuð, Jón, Stefán og Anna, en þau vita ekki »smúl« í himintunglaganginum.« Við báðum hana fyr- ir alla muni að segja okkur til í því. »Já, geyin mtn: Þá tunglið hans þorra tírætt er, tel ég það lítinn háska.« Og nú skælir hún sig og segir: »Næsta sunnudag nefna ber — níu vikur til páska.« — Hún lét í meisa, og var faðir minn fyrst með henni, að segja fyiir. Hún gerði það dyggilega á endanum. Snjálaug átti og að kemba fyrir aðra vinnukonuna, og sneypti hún hana duglega fyrir það, að hún kæmi aldrei inn, væri að dunda við útiverk, sem öll mætti gera á svipstundu. Þá hreykti Snjálaug sér af því, að hún væri fædd á Kóngsbakka. Svo heitir bær í Helgafellssveit. Segir hún,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.