Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 36

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 36
I 12 En þrána til skýja á reiðanum rak í röst út í veraldar-sænum. fig brast ekki gáfur að velja þér veg, en vilja og úrslita þrekið. Er örlög þín guðirnir undu í hnoð, um endann þú fékst ekki tekið. Á frostkvöldi blælygnu stóð ég á strönd og starði í ægishjálm nætur; og stjörnuhrap leit ég, er stefndi í bygð við stórbrýnda háfjallsins rætur. Pá heiðskíru vetrarnótt brustu þér brár við blysför úr hánorðurvegi. Par gusu upp logar í gerningadýrð úr glóðum frá umliðnum degi. í hjálmskúfum síðum var hrynjandi gull, sem hristist í bláloftsins iðu, er stjörnugljá vetrarins, stálkulda leið, þær stórbornu fylkingar riðu. Sú útlaga, hátigna, ófrjóva dýrð á einstæðings hátterni bendir, sem eldingu brúna á öræfi snýr og æfinni í sjálfan sig hendir. Við leiði þitt, Brynhildur, minnast þess má, hve mannkynið flakir í sárum — að einstæðings æfin er misfellu-mörg, sem marinn er fjölsettur bárum. Sá konungur þögli, sem krystallar líf, ei klöknar af sorg eða bænum,

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.