Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 39

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 39
"5 En Ella sagðist ekki eiga samleið með henni; hún ætti að mæta henni mömmu sinni, og þær ætluðu að fara að kaupa efni í fermingarföt. »Sjáðu þá um, að það verði nú almennilegt; — við eigum í stælum um það heima dags daglega. Pabbi segir, ég megi ekki fá silkikjól, og það fengu þó systurnar mínar. Hann vill fá mig til að trúa, að það sé vegna stríðsins.« »?að er hætt að vinna í verksmiðjunni, sem hann pabbi vinnur í, svo það verður engin fermingarveizla hjá okkur,« sagði smávaxin, greindarleg stúlka. »Á fermingardaginn hans Munda bróður höfðum við þó stórt kökugildi.« Sigga leit hálífyrirlitlega á hana: »Miðdegisveizlunni getum við nú alls ekki slept, segir hún mamma. Staða hans pabba heimtar það, að við bjóðum fáeinum gestum.« »Átt þú að vera í hvítum fermingarkjól?« spurði há og föl- leit stúlka hálffeimnislega. »Hvað annað?« sMamma segir, ég hafi meira gagn af dökkum. En ég er svo hrædd um, að ég verði sú eina,« bætti hún við og leit flóttalega frá einni til annarrar. Ella var að hugsa um orð prestsins; henni fanst, að djöfull hégómagirninnar hefði hlaupið í þær allar saman. Og hún klapp- aði vinalega á hönd stúlkunnar, og sýndi það göfuglyndi, að segja til hughreystingar: »Pað er sannarlega ekki undir fötunum komið.« Pá leit flóttalega stúlkan upp með þakklætissvip og sagði: »Nei, sama segir hún mamma.« »fað getur líka meira en verið, að ég verði í dökkum kjól,« bætti Ella við. Hún vildi ekki vera að láta mikið á sér bera, með því að berast meira á og hreykja sér upp yfir fátækar meðsyst- ur sínar. En þá kom Sigga aftur til sögunnar: »Vertu nú ekki með þessi uppgerðarlæti. Hún móðir þín er búin að sýna henni mömmu sýnishorn af hvítu kjólefni handa þér.« »Þó það; það getur nú samt vel orðið breyting á því,« sagði Ella afundin, og snéri sér frá henni, áleiðis inn í bæinn. Og með því það kom upp úr kafinu, að háa stúlkan fölleita átti samleið við hana, þá stakk hún hendinni undir handlegginn á henni, til að

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.