Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 44

Eimreiðin - 01.05.1915, Síða 44
I 20 enda stundum verið búin að minnast þeirra rækilega áður, og þá haft litlu við að bæta. Og sömu reglu var oss enn fyrst í hug að fylgja við fráfall Þorsteins Erlingssonar. En við nánari athugun sáum vér, að hér stóð svo sérstaklega á, að naumast var við sæmandi, að halda fast við þessa reglu. Pví ef það stóð nokkru tímariti nærri, að minnast P. E., þá var það ekki hvað sízt Eimr. Eví þegar hún hóf göngu sína, þá var það einmitt hann, sem lagði fyrir hana »brautina«, svo hún gat runnið viðstöðulaust út um alt Island. Með sínu stórfagra inngangskvæði » B r a u t i n < og öðrum frábær- um snildarkvæðum í tveim fyrstu árgöngum hennar aflaði hann henni þeirra vinsælda, sem hún hefir lengi að búið — og býr máske enn í dag. En hér við bætist og, að vagnstjóri Eimreiðarinnar (sem ekki er óskyldur henni sjálfri) og t\ E. áttu all-lengi samleið á lífsbrautinni. P’eir fylgdust að bekk úr bekk í latínuskólanum og áttu námsár saman við há- skólann 1 Khöfn. Og þegar svo P. E. heltist úr lestinni, en rit- stjóri Eimr. potaðist upp á við og varð betur settur efnalega, þá gat hann orðið P. E. að dá- litlu liði, einmitt þegar hann átti við sem mestar kröggur að stríða. Fyrst með því, að veita hon- um lítilsháttar atvinnu í samvinnu við sig, og því næst með því, að setja hann í sinn stað til þess, að ferðast um Island og rannsaka þar fornar rústir, fyrir auðkonu í Ameríku, sem lagt hafði fram nægilegt fé til þeirra rannsókna. Og loks tók hann P. E. með sér til Ameríku sem aðstoðarmann við rannsókn á fornum rústum þar, er menn töldu stafa frá Vínlandsferðum Is- lendinga, og útvegaði honum svo ríflega borgun fyrir starf sitt, að hann á eftir gat bæði ferðast talsvert um Ameríku og seinna um þýzkaland, eftir heimkomu sína til Khafnar. Minnist ritstjóri Eimr. margra ánægjulegra samverustunda bæði frá því ferðalagi og endranær; því f\ E. var óvenjulega skemtilegur og ræðinn

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.