Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 45

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 45
I 2 i maður, og þá ekki hvað sízt í þessari ferð, sem hann hafði hlakkað svo mjög til, eins og sjá má af kvæði hans »Vesturför- in«. Petta ferðalag mun og óefað hafa haft talsverða þýðingu fyrir hann og rýmkað sjóndeildarhring hans, þar sem honum við það veittist kostur á að sjá ýmislegt með eigin augum, sem hann hafði ekki áður þekt nema af frásögn annarra. Hann fékk og þá allmikla æfingu í enskri tungu, sem hann gat ekki talað fyrst, er hann kom til Boston (eða Cambridge við Boston). Gerðu því nokkrir ungir gárungar, er borðuðu við sama borð, fyrst í stað skop að honum og kölluðu hann »hinn þögla ás«, af því hann sagði aldrei neitt. En er hann hafði dvalið þar litla hríð og hlýtt á samræður manna, tók hann alt í einu að tala, án þess að reka tilfinnanlega í vörðurnar, og settu þá háðfuglarnir upp stór augu, og spurðu, hvernig maðurinn hefði fengið málið. Og svo lauk, að þeir frýðu ekki á Porstein, og þótti hann geta talað á við hvern annan; enda ekki trútt um, að hann léki einn þeirra, er var andatrúarmaður og næsta hjátrúarfullur, nokkuð grátt með sögum sínum, og launaði honum þannig lambið gráa. »Og nú er hann — nú er hann dáinn!« Bessi snjalli harp- slagi Fjallkonunnar, sem átti bæði svo hvella og þýða strengi, að hann gat ýmist leikið á þá »læki hennar og sumarnætur«, eða »seitt brim« í þá og látið hörpuna fá svo »hvassa tóna«, að hann vissi. að þeir mundu »láta misjafnt í móðureyra«. En þessir »hvössu tónar« voru jafníslenzkir og hinir, »því hann fékk við fossa þína fyrstu hljóð í strengi sína«, og brimólguna. »skapið það, sem inst var inni, erfði hann af móður sinni« (sbr. »Ljóða- bréf«, fyrnar (2. útg.) 69—70). Það eru einmitt þessar tvær hliðar, sem mest einkenna kveð- skap P. E.: öðrumegin létt og þýtt lindarhjal, og hinumegin sog- andi og ólgandi brimhljóð, eða, eins og hann hefir einkent þær sjálfur með annarri líkingu: öðrumegin litfríð og angandi blóm, og hinumegin hvassir og stingandi þyrnar. Eað er vafalaust hin fyrri af þessum hliðum, sem aflað hefir ljóðum P. E. mestra vinsælda. Fyrst og fremst formið, þessi óviðjafnanlega lipurð og léttleiki, þessi dansandi, sytigjandi hreim- fegurð og hljómbrigði, sem lætur svo kitlandi í íslenzkum eyrum, ekki sízt, þegar efnið þá jafnframt er eins aðlaðandi og yndis- þýtt, eins og það er í hinum mörgu ljúflingsljóðum og léttfeta-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.