Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1915, Page 49

Eimreiðin - 01.05.1915, Page 49
125 kirkjan og kenningar hennar eða sú guðshugmynd, sem flestir þjónar hennar prédika. Og fyrir Kristi bar hann jafnan hina dýpstu lotningu;1) enda getur enginn gengið þess dulinn, er les kvæði hans, að hann var sannur lærisveinn hans. Pví það eru einmitt sömu háleitu hugsjónirnar, sem Kristur prédikaði, er ganga -eins og rauður þráður gegnum öll þjóðfélagskvæði P. E.: frelsi og jafnrétti, kærleiki og sannleiki, og þá auðvitað jafn- framt hatur á andstæðum þeirra: harðstjórn og kúgun, hræsni og yfirdrepsskap. Og þar sem honum fanst, að þær meginstoðir, sem héldu þessum þokkahjúum uppi, væru auðvald, konungsvald og kirkjan, þá hlaut barátta hans •einkum að beinast að þessu þrennu. Oll hin svæsnustu byltingakvæði P. E. eru ort í Khöfn. En á þeim árum, er hann dvaldi þar, gekk kúgunar- og harð- stjórnaröld Estrúps yfir Danmörku, og studdu prestarnir og kirkj- an þá stefnu með ráði og dáð, að minsta kosti allur meginþorri prestanna. Og auðvitað lögðust flestir auðmenn landsins á sömu sveifina. Var þar því við ramman reip að draga. Pað blað, sem harðast og hlífðarlausast barðist gegn harðstjórn Estrúps, og þá ekki síður gegn stoðum hans og styttum; auðmönnunum og kirkj- unni, var blað jafnaðarmanna »Social-Demokraten«. Og einmitt það blað las Þ. E. mest allra blaða, og um tíma nær eingöngu. Eaðan stafar því mikið af því hatursfræi gegn kirkju og auðvaldi, sem finna má ávöxtinn af í kvæðum Porsteins. En hér við bættist og, að í sama mund bar Georg Brandes höf- uð og herðar yfir alla í bókmentaheiminum danska, og barðist með jötunafli gegn kúgun, harðstjórn og kirkjukreddum. Var því ekki að furða, þó að Porsteinn fylkti sér brátt undir merki hans (sbr. »Afmælisvísur«, Þyrnar 203—205), enda urðu þeir, hann og Byron (sem Porsteinn las mest allra útlendra skálda og dáðist mest að — næst Njálu, sbr. Pyrnar 160), helztu leiðarstjörnur hans á bókmentahimninum. En báðir voru þeir brennimerktir sem byltingamenn og guðleysingjar, hvor af sinni samtíð, og því ekki að undra, þó Porsteinn hlyti sama stimpilinn, er hann stýrði eftir segulnál þeirra. x) Annað mál er það, að hann mun ekki hafa viljað viðurkenna kenningar kirkjunnar um guðdóm Krists. En í því eiga margir trúaðir menn, bæði únítarar og ýmsir nýguðfræðingar, sammerkt við hann. 9

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.