Eimreiðin - 01.05.1915, Qupperneq 56
132
Og drenglund þín og dirfð ei sátu hjá,
er dreginn sástu fjötur vesling á.
Og meðan Island á til sannleiksþrá,
það elskar, blessar þína göfgu sál.
í>ú áttir skap þess, tungutak og mál,
svo traust og mjúkt og einlægt, hreint og skært!
þess háu jökul-hrönn sem eldsins bál —
þess hatur jafnt og ást í þinni sál. —
þess viðkvæmasta von. sem hárbeitt stál,
var vopn þíns óðs, er hlíft gat jafnt og sært.
Og áhrif þín á íslands smáu þjóð,
þau eru brautryðjandans frjálsu spor,
sem gengin verða meðan lifa ljóð,
unz lögð er brautin eftir þinni slóð,
svo bein og löng, sem augað leit í óð
á óskastundu hjá þér, dreymda vor!
Í’ORSTEINN T5. kORSTEINSSON.
Guðshugmyndin og stríðið.
EIMREIÐIN flytur engar stríðsfréttir, og er það með ráði
gert. Pví þó hún — eins og aðrar nöfnur hennar — sé auðvit-
að ferðmikil, þá er þó rafmagnsbylgjan í símanum fljótari, svo að
flestar stríðsfréttir hennar mundu vera orðnar úreltár, og aðrar
nýrri komnar í staðinn, þegar hún kemst í áfangastað sinn.
Auðvitað gæti hún samt flutt álit sitt og yfirlit yfir ýmislegt,
sem við ber í stríðinu, frekar en gert er í almennum fréttablöð-
um, En á því er líka talsvert vandhæfi fyrir tímarit, sem út
kemur í hlutlausu landi; bæði af því, að enn er svo margt í